Fréttir

„Mínar síður“ og rafrænar kortagreiðslur í loftið

Pétur Vilhjálmsson14. október 2024Hugverkastofan
Minar Sidur 2

Hugverkastofan heldur áfram að taka stór skref á stafrænni vegferð og hefur nú sett „Mínar síður“ í loftið á hugverk.is. Á „Mínum síðum“ geta viðskiptavinir Hugverkastofunnar fylgst með sínum málum sem eru til meðferðar hjá Hugverkastofunni og sent gögn með rafrænum hætti beint inn á mál sem eru til meðferðar. Þá er á síðunum hægt að fá yfirlit yfir þau hugverkaréttindi sem viðkomandi á skráð hjá stofnuninni, fylgjast sérstaklega með réttindum sem eru komin að endurnýjun og vista leitarniðurstöður.

Stofnunin hefur einnig opnað fyrir fyrsta áfanga af rafrænum kortagreiðslum. Nú er hægt að greiða fyrir nýjar vörumerkjaumsóknir og endurnýjun skráðra vörumerkja með ARK greiðslukortalausn sem Fjársýslan hefur þróað í samstarfi við Stafrænt Ísland. Á næstu mánuðum munu rafrænar kortagreiðslur verða í boði fyrir allar umsóknir og erindi sem greiða þarf fyrir hjá Hugverkastofunni.

„Mínar síður“ Hugverkastofunnar eru hannaðar á grunni leitarvéla sem þróaðar hafa verið fyrir vef stofnunarinnar en innskráning fer fram í gegn innskráningarkerfi island.is. Meirihluti umsókna um skráningar hugverkaréttinda sem berast til Hugverkastofunnar eru frá sérhæfðum umboðsmönnum. Þarfir slíkra stórnotenda, sem geta verið með mörg hundruð mál í gangi á hverjum tíma, eru að mörgu leyti ólíkar þörfum almennra notenda sem leggja inn umsókn einu sinni á ári eða sjaldnar. Við þróun á „mínum síðum“ var haft að leiðarljósi að mæta mismunandi þörfum ólíkra notenda og voru haldnar vinnustofur með notendum í hönnunarferlinu. Einstaklingar og prókúruhafar fyrirtækja geta nú skráð sig beint inn á vef Hugverkastofunnar. Í tilvikum þar sem aðrir en prókúruhafar þurfa að hafa aðgang að síðunum, t.d. fyrir hönd vinnuveitenda sinna, er hægt að stofna sértæk umboð gagnvart Hugverkastofunni á island.is.

„Mínar síður“ verða þróaðar áfram í nánu samtali við viðskiptavini á næstu mánuðum. Til stendur að bjóða upp á aðgang að málaskjölum og ýmsar sjálfsafgreiðslulausnir, t.d. hvað varðar veitingu fresta, rafrænar útskriftir úr skrám og aðilaskipti.