Fréttir

Ný stefna Hugverkastofunnar - framúrskarandi þjónusta, fagleg deigla og frábær vinnustaður

Eiríkur Sigurðsson06. júní 2024Hugverkastofan
Stefnumotunarvinna

Hugverkastofan hefur sett sér nýja stefnu til ársins 2028. Samkvæmt henni er hlutverk stofnunarinnar að fara með málefni hugverka á Íslandi, miðla þekkingu og vera í virku samtali við samfélagið um málefni sem tengjast hugverkarétti. Skilgreind gildi stofnunarinnar sem móta munu starfið framundan eru: fagleg, samstillt og framsækin. Á grunni þessara gilda eru sett fram þrjú meginmarkmið sem tengjast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um góða atvinnu og hagvöxt og nýsköpun og uppbyggingu:

  • að veita framúrskarandi þjónustu,
  • að vera fagleg deigla,
  • að vera frábær vinnustaður

Samhliða nýrri stefnu hefur skipuriti stofnunarinnar verið breytt og sviðum fækkað niður í tvö: rekstrarsvið og hugverka- og stjórnsýslusvið. Markmið skipulagsbreytinganna er m.a. að einfalda skipulag og auka teymisstarf, skýra verkaskiptingu og verkferla. Teymi hafa verið skipulögð í kringum lykilferla stofnunarinnar og meðferð, umsýsla og afgreiðsla umsókna um skráningu hugverkaréttinda verða öll innan eins sviðs.

Framtíðarsýnin er að Hugverkastofan sé þekkingarmiðstöð hugverkaréttinda í hugverkadrifnu samfélagi og sterkur hlekkur í keðju nýsköpunar og atvinnulífs.

Arnar Pálsson hjá Arcur og Herdís Haraldsdóttir hjá Irpa stýrðu stefnumótunarvinnunni í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk Hugverkastofunnar.

Nýja stefnu Hugverkastofunnar má nálgast hér.