Fréttir
Nýtt útlit á vef Hugverkastofunnar

Vefur Hugverkastofunnar hefur fengið nýtt útlit. Vefstofan Vettvangur annaðist hönnun og vefun, en hönnunarstaðallinn sem nýtt útlit byggir á, var unninn af hönnunarstofunni Kolofon fyrr á þessu ári.
Skipulag vefsins helst að mestu leyti óbreytt, en samhliða útlitsuppfærslunni voru gerðar smávægilegar breytingar á virkni. Þar má meðal annars enn ítarlegri leitarskilyrði í vörumerkjaleit og aðgerðir á spjöldum vörumerkja, einkaleyfa og hönnunar.
Við hvetjum gesti til að kynna sér nýtt útlit vefsins og tökum vel á móti ábendingum.
