Fréttir
Opnunartími yfir hátíðarnar

Hugverkastofan óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og hugkvæmni á nýju ári.
Hugverkastofan verður lokuð vegna jólaleyfa á Þorláksmessu og móttakan að Engjateigi 3 verður lokuð á milli jóla og nýárs. Við minnum á vefinn okkar sem alltaf er opinn, hugverk.is. Þar er hægt að senda umsóknir rafrænt, bóka rafræna þjónustu og fá svör við flestum hugverkatengdum spurningum. Einnig er hægt að senda útfyllt eyðublöð í tölvupósti til hugverk@hugverk.is, hafa samband í síma 580-9400, skilja eftir skilaboð á heimasíðu og senda bréfpóst til Hugverkastofunnar Engjateigi 3, 105 Reykjavík.
Almennur þjónustutími er frá kl. 10:00-15:00 alla virka daga.
Kær kveðja,
starfsfólk Hugverkastofunnar
