Sif nýr sviðsstjóri og Sandra yfirlögfræðingur hjá Hugverkastofunni

09. mars 2026Hugverkastofan
Sif Steingrímsdóttir hefur tekið við starfi sviðsstjóra hugverka- og stjórnsýslusviðs hjá Hugverkastofunni. Hún ber ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri sviðsins en þar fer fram efnisleg meðferð umsókna og annarra erinda í tengslum við skráningu á vörumerkjum, einkaleyfum og hönnun.
Sif hefur starfað sem lögfræðingur hjá Hugverkastofunni frá árinu 2018. Þar áður starfaði hún við lögmennsku. Sif útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum sama ár. Hún lauk námi í verkefnastjórnun við HÍ árið 2025 og er með IPMA D-vottun í verkefnastjórnun.
Þá hefur Sandra Theódóra Árnadóttir tekið tímabundið við starfi yfirlögfræðings Hugverkastofunnar.
Sandra hefur starfað sem lögfræðingur hjá Hugverkastofunni frá árinu 2018. Á árunum 2022-2024 var hún í starfsvist hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í Alicante á Spáni. Þar áður starfaði hún hjá Vinnumálastofnun. Sandra lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013.
