Fréttir

Stafræn þjónusta, metaverse, Covid, græn skref, tölfræði og Iceland vs. ICELAND

Eiríkur Sigurðsson23. júní 2023Hugverkastofan
Ársskýrsla Forsíða

Ársskýrsla Hugverkastofunnar fyrir árið 2022 hefur verið birt á vef stofnunarinnar. Í skýrslunni er m.a. að finna yfirlit yfir helstu þætti í starfsemi Hugverkastofunnar á liðnu ári, tölfræði varðandi umsóknir og veitingu hugverkaréttinda, lykiltölur úr rekstri og pistla starfsfólks um metaverse, eitt evrópskt einkaleyfi og Iceland vs. ICELAND málið.

Í ávarpi Borghildar Erlingsdóttur, forstjóra, kemur m.a. fram að á árinu 2022 hafi orðið mikilvæg breyting á stjórnsýslulegu umhverfi Hugverkastofunnar þegar starfsemi hennar var færð undir nýtt ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar. Með nýju ráðuneyti skapist ný tækifæri til að efla hugverkaiðnaðinn, m.a. með aukinni áherslu á hugverkavernd, enda hafi ráðherra málaflokksins sett það metnaðarfulla markmið að hugverkaiðnaðurinn verði stærsta útflutningsgrein Íslands.

Fjallað er um nýjan vef Hugverkastofunnar sem tekinn var í notkun um mitt ár 2022. Við hönnun vefsins var megináhersla lögð á bætta stafræna þjónustu við viðskiptavini og með tilkomu hans er hægt að skila flestum formlegum erindum til Hugverkastofunnar á vefnum með rafrænum skilríkjum.

Umsóknum um skráningu vörumerkja fjölgaði um tæp 4% frá árinu áður og hafa þær aldrei verið fleiri. Birtum vörumerkjum fjölgaði um 27%. Þessi munur skýrist af því að mjög vel gekk að afgreiða umsóknir og biðtími frá umsókn til skráningar styttist verulega. Landsbundnum vörumerkjaumsóknum frá íslenskum aðilum fækkaði hins vegar um 11% frá árinu 2021.

Einkaleyfisumsóknum og veittum einkaleyfum fækkaði verulega á árinu og er það í samræmi við stöðuna annars staðar í Evrópu. Umsóknum um staðfestingar á evrópskum einkaleyfum (EP) fækkaði um 35% á árinu. Landsbundnum einkaleyfisumsóknum fjölgaði hins vegar um 22%. Alþjóðlegum PCT-umsóknum íslenskra aðila fækkaði úr 12 í 9. Langflest íslensk einkaleyfi eru í eigu bandarískra aðila, eða 34%, en rétt tæpt 1% er í eigu íslenskra aðila.

Umsóknum um skráningu hönnunar fækkaði verulega á milli ára eða um 41%, en þess ber að gæta að árið 2021 var metár hvað það varðar.

Ársvelta Hugverkastofunnar 2022 var kr. 541,7 milljónir og hækkaði um 2,6% á milli ára. Rekstrarkostnaður var 537,4 milljónir kr. og jókst um 1,8% á milli ára. Afkoma ársins var því jákvæð sem nemur 4,3 milljónir kr. Tekjur stofnunarinnar samanstanda fyrst og fremst af innheimtum þjónustugjöldum frá innlendum og erlendum aðilum sem kosið hafa að vernda hugverk sín hér á landi. Stærsti útgjaldaliðurinn var launakostnaður eða um 79% af heildarkostnaði.