Fréttir
Starfsfólkið eins og önnur fjölskylda

Um mánaðamótin er síðasti starfsdagur Herdísar Traustadóttur, sérfræðings á þjónustusviði Hugverkastofunnar. Yfirleitt væri það ekki í miklar frásögur færandi að starfsmaður skipti um vinnu en í tilfelli Herdísar eru það stórtíðindi. Hún hefur nefnilega starfað hjá Hugverkastofunni í yfir 22 ár með hléum og farið með stofnuninni í gegnum róttækar breytingar.
Herdís segir að þó það hafi alltaf verið skemmtilegt á Hugverkastofunni hafi það mögulega verið enn skemmtilegra þegar hún hóf störf, í mars árið 2000, þá nýútskrifaður stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Nokkrir starfsmenn á svipuðum aldri hófu störf á svipuðum tíma og það varð til öflugur vinkonuhópur sem skemmti sér mikið saman, innan og utan vinnustaðarins. Hún segir að með auknum aldri og þroska hafi kannski aðeins dregið úr skemmtanagleðinni, þó enn sé alltaf mikið stuð á skemmtunum Hugverkastofunnar.
Gjörbylting með stafvæðingu
Aðspurð hvað standi upp úr á þessum tíma segir Herdís ekki flókið að svara því, það sé samstarfsfólkið. Eftir allan þennan tíma sé það orðið eins og önnur fjölskylda hennar að mörgu leyti. Hún muni sakna þess. Hvað varðar breytingar á vinnuumhverfinu hafi því verið gjörbylt með stafvæðingu.
„Þegar ég byrjaði var allt á pappír. Öll eyðublöð og öll bréf voru prentuð út og flest þurfti að vera í þríriti. Stór hluti af vinnunni fólst í því að taka afrit af pappírum og koma fyrir í málamöppum. Það er í raun ekki fyrr en í kringum árið 2010 að pappírsnotkun fer að minnka eitthvað að ráði. Nú er hins vegar meira og minna allt orðið stafrænt og engin þörf á að prenta neitt út.“
Stafvæðingin ekki endilega minnkað vinnu
Herdís er þó ekki á því að stafvæðingin hafi endilega sparað mikla vinnu þó hún hafi einfaldað marga ferla, vinnan hafi bara breyst. Innleiðing stafrænna lausna kosti líka mikla vinnu. Það sé þó alveg ljóst að stökkbreyting hafi orðið í því hversu miklu auðveldara sé fyrir viðskiptavini Hugverkastofunnar að sækja um öll réttindi.
Prófað nánast öll störf hjá Hugverkastofunni
Herdís sótti um auglýsta stöðu hjá Einkaleyfastofunni í mars 2000 og byrjaði í afleysingum í móttökunni. Hún starfaði þar til ársins 2006 en þá flutti hún til Danmerkur þar sem hún starfaði í tvö ár. Að þeim tíma liðnum flutti hún aftur heim og fékk þá fljótlega fastráðningu hjá Einkaleyfastofunni. Á þessum tíma hefur hún sinnt mjög fjölbreyttum störfum og snert á nánast öllu starfi stofnunarinnar, að undanskildum störfum lögfræðinga og stjórnenda. Hún segist meðal annars hafa ritstýrt Hugverkatíðindum, starfað við móttöku viðskiptavina, séð um skráningar, árgjaldagreiðslur, afgreiðslu umsókna um endurnýjun réttinda og nýjar umsóknir á öllum sviðum. Þá stundaði hún háskólanám í tannsmíði samhliða vinnu og lauk prófi frá Háskóla Íslands í fyrra. Hún hefur líka verið mjög virk í félagslífi starfsmanna en við brottför hennar þarf meðal annars að finna Hugverkastofunni nýjan grillmeistara.
Skjöl í sexriti á nýjum vinnustað
Herdís segir að það sé óhjákvæmilegt að hún muni sakna vinnustaðarins og samstarfsfólksins eftir allan þennan tíma. Hún haldi hins vegar að það veiti henni tækifæri til að vaxa sem einstaklingur að prófa eitthvað nýtt og kynnast nýju samstarfsfólki. Henni líst vel á nýja starfið hjá Hæstarétti Íslands.
„Maður er kominn svolítið aftur í pappírsskjölin, sem núna eru í sexriti.“
segir hún kankvís að lokum.
Starfsfólk Hugverkastofunnar þakkar Herdísi innilega fyrir samstarfið í öll þessi ár og óskar henni alls hins besta á nýjum vinnustað.
