Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Vernda landaheitið Ísland/Iceland

0608 Undirskrift ICELAND (1)

08. júní 2026Hugverkastofan

Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu.

Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Með samkomulaginu verður til sameiginlegt verklag til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og bregðast við þegar notkunin kann að ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings.

Samstarfið byggir meðal annars á þeirri reynslu sem íslensk stjórnvöld hafa aflað í langvarandi vörumerkjadeilu við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods, þar sem niðurstaðan varð Íslandi í hag og undirstrikaði mikilvægi þess að standa vörð um landaheitið  Ísland/Iceland á erlendum mörkuðum.

“Hugverkastofan hefur beitt sér fyrir því á alþjóðlegum vettvangi að aðilar geti almennt ekki fengið einkarétt á notkun landaheita við markaðssetningu vöru og þjónustu. Það er mjög mikilvægt fyrir trúverðugleika íslenskra útflutningsgreina að komið sé í veg fyrir misnotkun á landaheitinu Ísland/Iceland og það er því mjög ánægjulegt  að þetta samstarf um vöktun á vörumerkjaskráningum og villandi notkun á landaheitinu sé orðið að veruleika,“ segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.

„Orðspor Íslands er afar dýrmætt fyrir útflutningsgreinarnar okkar og ekki síst fyrir skapandi greinar og menningartengdan útflutning. Við höfum staðið í töluverðri baráttu um rétt íslenskra fyrirtækja til að kenna sig við landið en slík upprunatenging er nú á tímum sérlega mikilvæg,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. „Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum innblástur og því hefur Ísland verið leiðandi í umræðu um aukna vernd fyrir landaheiti innan alþjóðlega vörumerkjakerfisins. Það er því mikið gleðiefni að stjórnvöld og atvinnulíf taki nú höndum saman um að standa skipulega og markvisst að verndun og vöktun landaheitisins á alþjóðamarkaði.“

Mikilvæg hagsmunagæsla

Með samkomulaginu verður starfrækt fagráð með fulltrúum aðila samstarfsins. Hlutverk fagráðsins er að móta verklag, veita faglegan stuðning og gæta hagsmuna íslensks útflutnings. 

Samhliða hinu formlega samstarfi um vöktun munu stjórnvöld áfram beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að landaheiti verði almennt ekki einkavædd í vörumerkjarétti.

Vöktun fer annars vegar fram með vöktun vörumerkjaskráninga erlendis sem innihalda Ísland/Iceland eða tengd heiti og hins vegar með vefgátt á heimasíðu Íslandsstofu þar sem almenningur, fyrirtæki og stofnanir geta sent inn ábendingar um mögulega misnotkun landaheitisins erlendis.

Þegar mál kemur upp, hvort sem það er vegna vöktunar eða ábendingar, verður metið hvort ástæða sé til að bregðast við og með hvaða hætti. Ef tilefni þykir til verður umsækjanda eða notanda sent formlegt erindi þar sem óskað er skýringa á tengingu við íslenskan uppruna. Ef notkun telst ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings geta aðilar samkomulagsins gripið til frekari aðgerða í samræmi við sameiginlegt verklag. Í því felst að upplýsa þá sem hagsmuna hafa að gæta af því að verjast misnotkuninni svo þeir geti fylgt málinu eftir með viðeigandi hætti. Með samstarfinu og fyrstu aðgerðum vill samstarfshópurinn hins vegar stöðva slík mál á fyrstu stigum og þannig minnka þann kostnað sem ella þarf að fara í að verjast. Vefgátt ábendinga á íslensku og ensku má finna á heimasíðu Íslandsstofu:

Ábendingar um misnotkun landaheitisins Iceland / Ísland

Vernda landaheitið Ísland/Iceland - Hugverkastofan