Fréttir

Aðgerðir Hugverkastofunnar í tengslum við þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi

Eiríkur Sigurðsson10. nóvember 2022Lög og reglur
Log Og Reglur Blatt

Íslenska ríkið tekur þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins (ESB) gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu og hefur gengist undir reglugerð ESB nr. 269/2014 (um þvingunaraðgerðir í tengslum við aðgerðir sem grafa undan eða ógna friðhelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu) og innleitt helstu þvingunaraðgerðir sem reglugerðin nær til.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur farið fram á þátttöku Hugverkastofunnar í þessum þvingunaraðgerðum. Því hefur verið ákveðið að þeir lögaðilar og einstaklingar sem eru á bannlista ESB geti ekki fengið hugverkaréttindi skráð hér á landi né breytt réttindum sem eru skráð eða í ferli. Mál viðkomandi aðila verða sett á bið en réttindi verða ekki felld úr gildi. Heimilt er að greiða bæði árgjöld og gjöld vegna endurnýjunar til þess að viðhalda réttindum.