Fréttir
Breyting á reglugerð um vörumerki o.fl.

Þann 30. janúar sl. tók gildi breyting á reglugerð nr. 850/2020 um umsóknir og skráningu vörumerkja, félagamerkja og ábyrgðar- og gæðamerkja með reglugerð nr. 59/2023.
Breytingarnar varða einkum leiðréttingar á tilvísunum eða orðalagi einstakra ákvæða eða útfærslu til nánari skýringa. Helstu viðbætur eru þessar:
- Forgangur síðar tilkominnar umsóknar: Í nýrri 9. gr. a. reglugerðarinnar er nú kveðið á um málsmeðferð Hugverkastofunnar í þeim tilvikum sem merki hefur verið skráð en í ljós kemur síðar að önnur umsókn/skráning hefði staðið í vegi fyrir henni. Ákvæðið er nánari útfærsla á 23. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki (vml.)
- Frestir vegna formgalla: Í 14. gr. reglugerðarinnar er nú kveðið á um að Hugverkastofan geti óskað eftir skýringum vegna frestbeiðna að sex mánuðum liðnum í stað 12 og að málsmeðferð verði fram haldið á grundvelli fyrirliggjandi gagna að 12 mánuðum liðnum í stað 24, þó með þeim fyrirvara að umsækjandi eða umboðsmaður hans hafi látið hjá líða að sinna frestum.
- Leiðrétting á augljósum villum: Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar er Hugverkastofunni nú heimilt að leiðrétta augljósar villur í umsókn eða skráningu, s.s. í vöru- og/eða þjónustulista eða í lýsingu, þó með þeim fyrirvara að umsækjandi/rétthafi verði ávallt upplýstur um slíkar breytingar.
- Endurnýjun: Í 47. gr. reglugerðarinnar er nú kveðið á um að vöru- og/eða þjónustulisti skráningar sem lögð var inn fyrir 1. apríl 2021 eða fyrir merki sem skráð var með vörulista á íslensku, þurfi við endurnýjun áfram að vera á íslensku. Undantekning sú sem tilgreind er í 4. gr. reglugerðarinnar varðar enda aðeins vöru- og þjónustulista nýrra umsókna og skráðra merkja eftir 1. apríl 2021.
- Lýsing: Samkvæmt 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar skal lýsing sem fylgir merki eingöngu varða framsetningu þess merkis sem um ræðir. Tekið er nú fram í 61. og 63. gr. reglugerðarinnar að texti í lýsingu sem ekki varðar framsetningu merkis verði ekki færður í vörumerkjaskrá.
- Hugverkatíðindi: Ákvæði 64. gr. reglugerðarinnar um að hægt sé að kaupa útprentun tíðindanna hjá Hugverkastofunni hefur verið fellt brott. Hugverkatíðindi eru eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á heimasíðu stofnunarinnar.
- Umboð: Eftir tilkomu reglugerðar nr. 850/2020 krefst Hugverkastofan ekki umboðsskjals þegar komið er fram fyrir hönd umsækjanda / eiganda. Áfram þurfa þó umsækjendur eða rétthafar, sem ekki eru með búsetu á Íslandi, að tilnefna umboðsmann sem má vera búsettur á EES-svæðinu, sbr. 35. gr. vml. Umboðsmaður skal enn fremur með skýrum hætti að taka slíkt umboð að sér. Hugverkastofan getur ávallt kallað eftir umboði ef þurfa þykir.
Í þeim tilvikum sem tilnefningu á umboðsmanni vantar eða umboðsmaður segir sig frá umboðsmennsku fylgir Hugverkastofan þeirri málsmeðferð sem tilgreind er í 76. gr. reglugerðarinnar. Hún hefur nú verið nánar útfærð á þann veg að ef (nýr) umboðsmaður er ekki tilnefndur innan tiltekins frests fyrir umsókn, verður hún felld úr gildi, sbr. 35. gr. vml.
Ef um skráningu er að ræða er heimilt að fresta þeim réttaráhrifum þar til t.d. er komið að endurnýjun eða annarra aðgerða er þörf varðandi skráninguna. Ef (nýr) umboðsmaður er ekki tilnefndur af umsækjanda þegar þess gerist þörf síðar, er skráning merkisins felld úr gildi, sbr. 35. gr. vml.
Unnið er að því að sameina grunn- og breytingareglugerð í eitt skjal á íslensku og ensku sem verða aðgengileg á heimasíðu Hugverkastofunnar innan skamms. Hugverkastofan veitir allar nánari upplýsingar um ofangreint ef þörf krefur.
