Fréttir
Breytingar á yfirskriftum flokka vöru og þjónustu í vörumerkjaumsóknum

Ný auglýsing um flokkun vöru og þjónustu tekur gildi 1. janúar 2026. Auglýsingin er nr. 1355/2025 og er birt á vef Stjórnartíðinda.
Nýja flokkaskráin mun gilda um allar vörumerkjaumsóknir sem berast Hugverkastofunni frá og með 1. janúar næstkomandi. Umsóknir sem berast stofnuninni til og með 31. desember 2025 munu áfram fylgja núverandi flokkun og verða ekki endurflokkaðar.
Breytingar verða á yfirskriftum flokka 1, 3, 8, 9, 10, 26 og 29 eins og sjá má í auglýsingunni og í upplýsingum um Nice-samninginn á vef Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).
