Fréttir

EUIPO samstarfsverkefni aðlöguð íslenskri löggjöf

Margrét Hjálmarsdóttir27. apríl 2023Lög og reglur
Log Og Reglur Appelsinugult

Hugverkastofan hefur á liðnum árum tekið virkan þátt í og innleitt nokkur verkefni Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) og aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB), sem stuðla eiga að samræmingu (e. Common Practices – CP) við túlkun laga og reglna á sviði vörumerkja og hönnunar. Samstarf þetta byggir á samstarfssamningi Hugverkastofunnar og EUIPO frá árinu 2013 og því að íslensk löggjöf á þessu sviði er í samræmi við tilskipanir ESB um sama efni með hliðsjón af skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Á liðnum mánuðum hefur verið unnið að því að laga verkefnin betur að íslenskri löggjöf og túlkun til þess að auka skýrleika, gagnsæi og fyrirsjáanleika í tengslum við meðhöndlun umsókna. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vísa til þeirra við málsmeðferð, bæði af hálfu Hugverkastofunnar og umsækjenda. Þau skjöl sem hafa verið yfirfarin með þessum hætti (e. Practice papers) eru nú aðgengileg ásamt lista yfir öll verkefni sem nálgast má á íslensku og á ensku á vefsíðu Hugverkastofunnar og tilkynning um aðlögun skjalanna hefur jafnframt verið birt á EUIPN síðu EUIPO.

Þau skjöl sem hafa verið yfirfarin með þessum hætti eru CP3 - Mat á sérkenni orð- og myndmerkja sem hafa lýsandi orðhluta eða orð sem talin eru skorta sérkenni af öðrum ástæðum, CP4 - Umfang verndar svart/hvítra merkja, CP6 - Samræming á kröfum til myndrænnar útfærslu á hönnun í umsókn og CP11 - Nýjar tegundir merkja, rannsókn á framsetningu/formi og grundvöllur synjunar. Hverju skjali er skipt í tvo hluta. Í þeim fyrri er að finna samantekt á helstu markmiðum verkefnisins og viðmið samræmingarverkefna almennt en í þeim síðari er nánari útlistun á meginviðfangsefnum hvers verkefnis.