Fréttir

Innleiðing á viðmiðum fyrir nýjar tegundir merkja

Eiríkur Sigurðsson05. desember 2022Lög og reglur
Log Og Reglur Blatt

Hugverkastofan tekur þátt í samræmingarverkefnum Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) sem ætlað er að stuðla að samræmingu aðildarríkja ESB og EES-ríkja á mati á skráningarhæfi merkja. Stofnunin hefur nú innleitt CP11 verkefnið sem varðar mat á skráningarhæfi nýrra tegunda merkja og viðmið í formlegri og efnislegri meðhöndlun umsókna.

Nýjar tegundir merkja eru samkvæmt skilgreiningu CP11 hljóðmerki, hreyfimerki, margmiðlunarmerki og heilmyndarmerki (e. holograms). Verkefnið snýr að samræmdum viðmiðum um m.a. framsetningu, tegund og lýsingu þessara merkja, auk sérkennis- og ruglingshættumats.

Viðmiðin eru í samræmi við mat Hugverkastofunnar á sérkenni og aðgreiningarhæfi merkja almennt og hafa því ekki í för með sér miklar breytingar.

Upplýsingar um CP11 og önnur samræmingarverkefni, má nálgast hér.