Fréttir
Ný auglýsing um flokkun vöru og þjónustu

Ný auglýsing um flokkun vöru og þjónustu tók gildi 1. janúar 2023. Auglýsingin er nr. 1550/2022 og er birt hér á vef Stjórnartíðinda.
Helstu breytingar eru þær að nú er gert ráð fyrir að flokkun geti, auk þess að samræmast NICE flokkunarkerfinu, byggt á flokkunarkerfi EUIPO (HDB). Það flokkunarkerfi byggir á NICE og er í raun aðeins nánari útfærsla á því sem NICE hefur upp á að bjóða. HDB er aðgengilegt hér.
Á yfirskriftum (e. class headings) urðu tvær breytingar, á flokkum 36 og 45:
36: Orðið fasteignaviðskipti verður fasteignaþjónusta.
45: Yfirskrift verður: Lögfræðiþjónusta; persónuleg öryggisþjónusta til verndar áþreifanlegum eignum og einstaklingum; stefnumótaþjónusta; samfélagsmiðlaþjónusta á internetinu; útfararþjónusta; barnagæsla.
