Fréttir
Ný auglýsing um flokkun vöru og þjónustu frá 1. janúar 2019
21. desember 2018Lög og reglur

Ný auglýsing um flokkun vöru og þjónustu, sem taka mun gildi þann 1. janúar 2019, hefur verið birt á vefsíðu Stjórnartíðinda. Auglýsingin er aðgengileg hér.
Flokkunin byggir á uppfærðri 11. útgáfu NICE-flokkunarkerfisins sem taka mun gildi á sama tíma. Með uppfærslunni urðu nokkrar breytingar á einstaka yfirskriftum flokka auk þess sem tilgreiningum var bætt við eða þær færðar til. Nánari tilgreiningu á þeim vörum og þjónustu sem falla undir þær yfirskriftir má nálgast hér.