Fréttir

Ný reglugerð um gjöld fyrir þjónustu Hugverkastofunnar

Eiríkur Sigurðsson05. júní 2023Lög og reglur
Log Og Reglur Appelsinugult

Ný reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl. tekur gildi 1. júlí.

Í 1. gr. er nú kveðið á um endurgreiðslu ofgreiddra gjalda, auk árgjalda sem falla til við meðferð mála um endurveitingu réttinda til einkaleyfa, þegar slíkri beiðni er endanlega hafnað. Þá er í 6. grein kveðið á um gjald fyrir meðhöndlun tilkynninga um nýtta undanþágu frá viðbótarvernd í samræmi við breytingar sem urðu á lögum um einkaleyfi nr. 17/1991 með lögum nr. 57/2021.

Reglugerðin er númer 536/2023 og var birt á vef Stjórnartíðinda þann 2. júní 2023. Reglugerðin verður aðgengileg á vef Hugverkastofunnar frá 1. júlí n.k.