Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Finnska Weeefiner hlýtur Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 2026

2Q6A4799

22. maí 2026Alþjóðlegt samstarfNýsköpunViðburðir

Finnska fyrirtækið Weeefiner hlaut í gær Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna fyrir einkaleyfisvarða tækni til að hreinsa málma og verðmæt steinefni úr iðnaðaraffalli. Mikko Hänninen, stofnandi og forstjóri Weeefiner, tók á móti verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins á verðlaunaathöfn í Osló í gær.

4D Scavenger®-tækni Weeefiner stuðlar að hringrásarhagkerfi með því að breyta úrgangi í verðmæta auðlind. Hún byggir á þrívíddarprentun með sértækum bindiefnum og gerir kleift að hreinsa uppleysta málma og steinefni í mjög lágum styrk úr iðnaðaraffalli á hagkvæman hátt. Með notkun tækninnar er nú mögulegt að hreinsa iðnaðaraffall og endurvinna dýrmæt hráefni í iðnaði þar sem slíkt var áður mjög torvelt og dýrt, t.d. í námuvinnslu, málmiðnaði, efnaiðnaði og í orkugeiranum.

„Verðlaunin munu styðja við vöxt okkar og auka sýnileika gagnvart mögulegum viðskiptavinum og samstarfsaðilum,
Quote Icon

Elmeri Lahtinen

framkvæmdastjóri tæknimála Weeefiner

„Það er mjög ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir erfiðið við þróun þessarar tækninýjungar og verðlaunin munu styðja við vöxt og auka sýnileika okkar gagnvart mögulegum viðskiptavinum og samstarfsaðilum,“ segir Elmeri Lahtinen, framkvæmdastjóri tæknimála hjá Weeefiner.

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna voru sett á fót árið 2025 af hugverkastofum Norðurlandanna. Þau eru veitt árlega til fyrirtækja sem hafa þróað framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.

Cecilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, hélt erindi við verðlaunaafhendinguna í Osló
Cecilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, hélt erindi við verðlaunaafhendinguna í Osló

Hefring Marine var tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd og Björn Jónsson, stjórnarformaður og meðstofnandi fyrirtækins kynnti á viðburðinum í Osló snjallsiglingakerfi fyrirtækisins sem nýtir gervigreind  og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að leiðbeina skipsstjórnendum og flotastjórum um ýmsa þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur skipa og báta. Á viðburðinum kynnti Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, einnig einkaleyfisvarða tækni Carbfix til að binda koltvísýring í bergi og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar tók þátt í pallborði þar sem rætt var hvað einkenni norræna nýsköpun og hvernig megi efla hana til framtíðar. 

Íslenski hópurinn á verðlaunaafhendingunni í Osló: Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar; Björn Jónsson, stjórnarformaður og meðstofnandi Hefring Marine, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix
Íslenski hópurinn á verðlaunaafhendingunni í Osló: Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar; Björn Jónsson, stjórnarformaður og meðstofnandi Hefring Marine, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix
„Við erum afskaplega ánægð með þetta tækifæri til að kynna og styðja við framúrskarandi íslensk nýsköpunarfyrirtæki á samnorrænum vettvangi"
Quote Icon

Borghildur Erlingsdóttir

forstjóri Hugverkastofunnar

„Við hjá Hugverkastofunni erum afskaplega ánægð með þetta tækifæri til að kynna og styðja við framúrskarandi íslensk nýsköpunarfyrirtæki  á samnorrænum vettvangi. Norræn nýsköpun er í fremstu röð þegar kemur lausnum sem hafa raunveruleg áhrif til að auka sjálfbærni á heimsvísu og samstarf hugverkastofa Norðurlandanna um þessi verðlaun undirstrikar hversu mikilvægt er að tengja saman þekkingu, nýsköpun og vernd hugverka yfir landamæri," segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.

Meira um verðlaunin og tilnefnd fyrirtæki.

Finnska Weeefiner hlýtur Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 2026 - Hugverkastofan