Fréttir

Háskóli Íslands og Hugverkastofan undirrita samstarfssamning

Jón Gunnarsson26. apríl 2022NýsköpunSamstarf
Hi 1

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, undirrituðu samninginn í gær. Tilgangur samstarfsins er að stuðla að aukinni vitund og þekkingu á hugverkarétti með fræðslu fyrir starfsmenn skólans og nemendur. Aðilar eru sammála um mikilvægi hagnýtingar rannsókna og verndun hugverka fyrir samfélagið.

Samstarfið felur meðal annars í sér aukið framboð af hugverkaréttindafræðslu í námskeiðum skólans, en auk þess mun nemendum og starfsfólki HÍ bjóðast að taka þátt í verkefnum í samstarfi við Hugverkastofuna í þeim tilgangi að stuðla að aukinni þekkingu á vernd hugverka og hagnýtingu rannsókna innan háskólasamfélagsins.

Samningurinn er byggður á traustum grunni og farsælu samstarfi. Það er sérstaklega ánægjulegt að skrifa undir þennan samning í tengslum við alþjóðlega hugverkadaginn sem er haldinn 26. apríl ár hvert og er þema dagsins í ár hugverk og ungt fólk. Samningurinn við háskólann veitir starfsfólki hans, sem og nemendum, aukið tækifæri til að sækja sér þekkingu um hugverkaréttindi sem er nauðsynlegur þáttur í árangri nýsköpunar, rannsóknar- og þróunar.

forstjóri Hugverkastofunnar

Það er ánægjulegt að formfesta og efla það góða samstarf sem Háskóli Íslands og Hugverkastofan hafa viðhaft um árabil. Í nýrri stefnu Háskóla Íslands er aukin áhersla lögð á nýsköpun. Hugverkaréttur er mikilvægur liður í nýsköpun og hagnýtingu rannsókna eins og sjá má af starfi fjölda fyrirtækja sem sprottið hafa frá Háskóla Íslands. Með samningnum gefst starfsfólki og nemendum aukið tækifæri að öðlast þekkingu á hugverkarétti hvort sem sú þekking nýtist innan skólans eða í atvinnulífinu að loknu námi.

rektor Háskóla Íslands

Frá vinstri: Ólöf Ragnarsdóttir, deildarstjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Jón Gunnarsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar
Frá vinstri: Ólöf Ragnarsdóttir, deildarstjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, Jón Gunnarsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar