Fréttir

Sagareg sigurvegari Gulleggsins 2025

Eiríkur Sigurðsson17. febrúar 2025NýsköpunViðburðir
Sagareg Jenna Bjork Sara Palsdottir Omar Ingi Halldorsson Gudjon Asmundsson Logi Einarsson Asta Sollilja Gudmundsdottir Sigridur Mogensen.Jpg Scaled

Föstudaginn 14. febrúar s.l. fór lokakeppni Gulleggsins 2025 fram, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, þar sem nýstárlegar viðskiptahugmyndir glöddu gesti í sal og í beinni útsendingu á visir.is. Keppnin var haldin í hátíðarsal Grósku þar sem stemningin var rafmögnuð og keppendur heilluðu áhorfendur og dómara upp úr skónum. Hugverkastofan er stoltur samstarfsaðili Gulleggsins og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri, sat í dómnefnd keppninnar.

Vinningshafar Gulleggsins 2025

1.sæti – Sagareg:

Sigurvegarann kynnti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Sagareg einfaldar gerð umsóknarskjala (dossiers) um markaðsleyfi lyfja með gervigreind og sérhæfðum hugbúnaði. Lausnin sjálfvirknivæðir textaskrif, töflugerð og gæðaeftirlit, sem tryggir hraðari og áreiðanlegri umsóknir til heilbrigðisyfirvalda.

2.sæti – Hvað nú?:

Hvað nú? veitir syrgjendum heildstæða þjónustu sem einfaldar ferlið í kjölfar andláts ástvina. Þjónustan styður syrgjendur á erfiðum tíma, eykur skilvirkni og hjálpar þeim að komast fyrr aftur út í samfélagið. Nafnið vísar í algengu spurninguna sem vaknar við slíkar aðstæður: „Hvað nú?“

2.sæti Gulleggsins 2025 – Hvað nú?:
2.sæti Gulleggsins 2025 – Hvað nú?:

3.sæti – Samvís

Samvís þróar nýja kynslóð leitarvéla fyrir vísindamenn og námsmenn með gervigreindartækni. Lausnin auðveldar aðgengi að rannsóknum og skapar brú milli vísinda og samfélags. Samvís var einnig valið sem háskólateymið sem fer fyrir Íslands hönd til Aþenu á alþjóðlega frumkvöðlakeppni í boði JA Iceland, kynnt af Petru Bragadóttur framkvæmdastjóra JA Iceland.

3.sæti Gulleggsins 2025 – Samvís
3.sæti Gulleggsins 2025 – Samvís

Heiðursverðlaun 2025 – Meniga

Meniga hlaut Heiðursverðlaun Gulleggsins 2025 fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslensks frumkvöðlastarfs. Meniga tók þátt í Gullegginu árið 2009, var meðal topp 10 en hlaut ekki verðlaunasæti. Síðan þá hafa þau náð miklum árangri og fest sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði.

Heiðursverðlaun Gulleggsins 2025 – Meniga
Heiðursverðlaun Gulleggsins 2025 – Meniga