Fréttir

Hljóðmerki

Frett Um Hljodmerki

Vörumerki eru allt í kringum okkur. Þau eru margs konar tákn sem fólk og fyrirtæki í atvinnustarfsemi nota til að auðkenna vörur sínar og þjónustu og auðvelda þannig neytendum að kaupa aftur það sem ánægja var með. Sterk vörumerki bora sér leið inn í undirmeðvitund neytenda og skapa þar sterkar tilfinningar. Markmið eigenda slíkra merkja er að tilfinningarnar séu jákvæðar.

Íslensk fyrirtæki hafa verið dugleg að sækja um skráningu vörumerkja á síðustu árum og á árinu 2022 voru umsóknirnar 608; tæplega tvær á hverjum degi ársins. En vörumerkin sem verða til á hverjum degi eru mun fleiri því aðeins hluti þeirra ratar til Hugverkastofunnar sem vörumerkjaumsókn.

Þekkirðu hljóðin?

Á hverjum degi verða neytendur varir við hljóðmerki víða í sínu daglega lífi. Við þekkjum öll hljóðið í ljóninu frá MGM sem hefur heilsað okkur á hvíta tjaldinu í heila öld, Netflix tónana og tikkið í klukkunni í 60 Minutes. Flest þekkjum við líka flautið hennar Rue úr Hungurleikunum. Við heyrum þessi hljóð og við vitum nákvæmlega hvað er að gerast. Prófaðu að smella á myndirnar og sjáðu hvort þú þekkir ekki hljóðin.

  • Mgm

    MGM ljónið öskrar

  • Netflix

    Netflix tónarnir

  • 60

    Tikkið í 60 minutes klukkunni

  • Hunger Games

    Flautið hennar Rue

Íslensk hljóðmerki

Það skemmtilega er að það er til töluverður fjöldi íslenskra merkja sem innihalda hljóð. Við erum umkringd þeim alla daga. Í útvarpi, sjónvarpi og á samfélagsmiðlum. Þau gera lífið skemmtilegra en gegna líka nákvæmlega sama hlutverki og hefðbundin vörumerki; þau hjálpa neytendum að þekkja vörur og þjónustu.

  • Kronan

    Stef Krónunnar

  • Kringlan

    Kringlan á sitt stef

  • Dominos

    Það er pizza í matinn

  • Hagkaup

    Stef Hagkaupa

Það er tiltölulega stutt síðan fyrst var hægt að skrá hljóð sem vörumerki hjá Hugverkastofunni. Fyrsta umsóknin um skráningu á hljóði barst árið 2019 og síðan hafa tvær umsóknir bæst við. Öll eru merkin erlend.

Breyttir tímar og tækni kalla á breytta miðlun og það fer ekki framhjá neinum að fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa búið til sinn hljóðheim og nota í sínu markaðsefni. Þau átta sig á að það þarf að nálgast fólk með öðrum og fjölbreyttari hætti en áður. Við tengjum hiklaust raddir, hljóð og tónlist við ákveðnar vörur og þjónustu – og það er ekkert nýtt; Egill Ólafsson hefur verið rödd Toyota í 30 ár og við vitum það öll. Þá hafa ýmsir útvarps- og sjónvarpsþættir átt sín stef lengi og þegar við heyrum þau kalla þau okkur að tækjunum.

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort íslenskir aðilar taki við sér og sæki um skráningu hljóðmerkja á næstu misserum. Við á Hugverkastofunni bíðum a.m.k. spennt eftir fyrstu umsókninni. Kemur hún frá þér?

(Unnið upp úr pistli sem birtist fyrst í Ársskýrslu Hugverkastofunnar 2021.)

Sækja um skráningu hljóðmerkis