Fréttir
Tímamót í sögu einkaleyfa í Evrópu – Unitary Patent, eitt evrópskt einkaleyfi

Árið 2023 markar tímamót í sögu einkaleyfa í Evrópu en þá eru 50 ár liðin frá undirritun Evrópska einkaleyfasamningsins (e. EPC) sem er grunnur þess kerfis sem við þekkjum í dag fyrir veitingu evrópskra einkaleyfa (e. European Patent). Það kerfi var ákveðin þrautalending þar sem stefnt hafði verið að því að koma á fót kerfi fyrir eitt evrópskt einkaleyfi sem gildi hefði í fleiri en einu ríki en það ekki tekist. Nokkrum tilraunum og samningum síðar sést nú loks til sólar þar sem frá og með 1. júní 2023 verður eitt evrópskt einkaleyfi (e. Unitary Patent) að veruleika.
Eitt einkaleyfi – 25 ríki
Evrópsk einkaleyfi eru í dag veitt af Evrópsku einkaleyfastofunni (e. European Patent Office – EPO) og á málsmeðferðartíma njóta þau verndar í öllum aðildarríkjum EPO, Íslandi þar á meðal frá árinu 2006. Veiting evrópskra einkaleyfa fer fram hjá EPO í einu lagi fyrir öll aðildarríkin 39 en til þess að einkaleyfi öðlist endanlega gildi þarf að staðfesta einkaleyfið (e. validation) í hverju ríki fyrir sig innan tiltekins frests, greiða gjald og leggja fram a.m.k. kröfur einkaleyfisins á viðkomandi tungumáli. Þetta þykir vera mikið umstang og kostnaðarsamt og því standa vonir til þess að umsýslan nú verði bæði einfaldari og ódýrari.
Af flóknum ástæðum sem ekki verða raktar hér er hið nýja kerfi eingöngu byggt upp af ríkjum Evrópusambandsins (ESB) en ekki öllum aðildarríkjum EPO þótt allir geti nýtt sér kerfið. Þá taka heldur ekki öll aðildarríki ESB þátt í samstarfinu á grundvelli undantekningar í samningum ESB sem kallast „Enhanced cooperation“. Ísland stendur því utan við þetta ásamt öðrum EES/EFTA ríkjum og fleiri aðildarríkjum EPO. Til grundvallar kerfinu liggja tvær evrópskar reglugerðir, annars vegar reglugerð um málsmeðferð nr. 1257/2012 og hins vegar reglugerð um þýðingar nr. 1260/2012. Þá er samningur um sameiginlegan einkaleyfadómstól (e. Unified Patent Court Agreement - UPCA) hluti af „pakkanum“. Gerðirnar tvær tóku gildi árið 2013 með þeim fyrirvara að dómstólasamningurinn, sem einnig er aðeins fyrir ríki ESB, hefði verið fullgiltur af að lágmarki 13 ríkjum, þar á meðal Frakklandi, Bretlandi og Þýskalandi. Alls hafa 17 ríki af 25 fullgilt samninginn þegar þetta er skrifað en þegar Þýskaland lauk fullgildingu í byrjun febrúar 2023 gat kerfið tekið gildi. Í kjölfar BREXIT er Bretland ekki lengur aðili að samkomulaginu.
Ferli við málsmeðferð og síðar veitingu evrópskra einkaleyfa mun haldast að mestu óbreytt. Eftir veitingu verður hins vegar mögulegt að fá eitt evrópskt einkaleyfi staðfest, í einu lagi, í þeim ríkjum ESB sem taka þátt í samstarfinu, þ.e. í allt að 25. Áfram verður hægt að velja stök ríki eins og í dag, þ. á m. Ísland eða óska eftir staðfestingu einkaleyfisins einnig í þeim EPO ríkjum sem ekki eru hluti af þessu kerfi. EPO mun fyrir málsmeðferð eins evrópsks einkaleyfis taka yfir hlutverk hugverkastofa í þeim ríkjum sem einkaleyfið nær til og halda utan um einkaleyfaskrá vegna þess og árgjöld.
Undirbúningur – „sunrise period“
Þann 1. janúar 2023 hófst undirbúningsferli hjá EPO að innleiðingu kerfisins og frá þeim tíma er hægt að sækja um eitt evrópskt einkaleyfi á grundvelli þeirra umsókna sem þegar eru í ferli hjá EPO eða óska eftir því að veitingu einkaleyfis verði frestað fram yfir gildistöku á nýju kerfi. Þegar aðlögunartíma lýkur þann 1. júní n.k. verður frestur til þess að óska eftir gildistöku fyrir eitt evrópskt einkaleyfi einn mánuður frá tilkynningu um veitingu. Frestur til að óska eftir gildi einkaleyfisins í einstökum ríkjum mun haldast óbreyttur en hann er almennt þrír mánuðir frá veitingu (fjórir á Íslandi).
Einn dómstóll – ein málsmeðferð
Hlutverk nýja dómstólsins verður að fjalla um ágreiningsmál um gildi einkaleyfa og brota á þeim, bæði þeirra sem gefin eru út sem eitt evrópskt einkaleyfi og þeirra sem gildi hafa í einstökum ríkjum. Ekki þarf því lengur að reka mál vegna evrópskra einkaleyfa í mörgum ríkjum samtímis með hugsanlega ólíkum niðurstöðum og þá nær lögsaga dómstólsins einnig til viðbótarvottorða (e. Supplementary Protection Certificate – SPC) sem byggja á evrópskum einkaleyfum. Starfsstöðvar dómstólsins verða dreifðar um aðildarríkin en meginaðsetur hans (e. Central Division) verður í París, fyrsta dómstig (e. Local division) verður m.a. í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Helsinki og áfrýjunardómstóll (e. Court of Appeal) í Lúxemborg. Þá verður á tveimur stöðum, í Lissabon og Ljubljana, hægt að fara með mál í samningaferli hjá Patent Mediation and Arbitration Centre.
Aðlögun – „opt-out“
Dómstóllinn tekur einnig til starfa 1. júní 2023 en frá og með 1. mars er hægt að undanskilja evrópsk einkaleyfi sem sótt hefur verið um eða þau veitt til þessa (umsóknir, veitt einkaleyfi og viðbótarvottorð sem byggja á þeim) frá lögsögu dómstólsins (e. opt-out). Óska verður eftir því sérstaklega og áður en til málshöfðunar gegn einkaleyfinu kemur. Ekki er hægt að komast hjá lögsögu dómstólsins eftir að mál hefur verið höfðað. Ef opt-out leiðin er valin gildir hún á líftíma einkaleyfisins/vottorðsins en mögulegt verður þó að hætta við, þó með þeim afleiðingum að opt-out verður ekki mögulegt aftur.
Það hefur verið afar spennandi að fylgjast með nýju kerfi við veitingu einkaleyfa í Evrópu verða að veruleika. Áhugavert verður einnig að sjá hvaða áhrif það mun hafa á vernd einkaleyfa í Evrópu í framtíðinni og þá sérstaklega hvað Ísland varðar. Mun staðfestum einkaleyfum fjölga hér á landi eða verður okkur einfaldlega sleppt?
Nánari upplýsingar um eitt evrópskt einkaleyfi má nálgast á þeim vefsíðum sem aðgengilegar eru í pistlinum.
Stytt útgáfa þessa pistils birtist áður í Viðskiptablaðinu.
