Fréttir
Hugverkastofan og Háskólinn í Reykjavík í samstarf

Hugverkastofan og Háskólinn í Reykjavík ætla að vinna saman að því að efla skilning nemenda og starfsfólks HR á mikilvægi hugverkaréttinda fyrir nýsköpun og atvinnulíf, m.a. með skipulagningu fræðsluviðburða fyrir nemendur, starfsfólk og almenning. Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Ragnhildur Helgadóttir rektor undirrituðu samstarfssamning þar að lútandi í HR fyrir helgi.
„Eitt af hlutverkum Hugverkastofunnar er að auka vitund í samfélaginu um mikilvægi hugverkaréttinda. Það er líklega óvíða mikilvægara en einmitt í háskólum að fræða fólk um hvernig skráning hugverkaréttinda skapar verðmæti, hvort sem það er með einkaleyfum á uppfinningum eða skráningu á vörumerkjum og hönnun og við erum þess vegna afskaplega ánægð með þennan samning.“ sagði Borghildur við undirritun samningsins.
Ragnhildur tekur undir mikilvægi þess að efla þekkingu á hugverkaréttindum. „Innan HR hefur í gegnum tíðina orðið til mikill fjöldi sprotafyrirtækja, bæði hjá nemendum og starfsfólki, auk þess sem nemendur hafa komið að stofnun fjölmargra fyrirtækja að námi loknu. Flest eiga þessi fyrirtæki það sameiginlegt að byggja á hugverkum og verðmæti þeirra liggja í einkarétti á að nýta þessi hugverk. Okkur finnst þess vegna mikilvægt að nemendur okkar og starfsfólk hafi aðgang að fræðslu og ráðgjöf á þessu sviði og erum mjög ánægð með samninginn.“

Samningurinn nær m.a. til fyrirlestra um hugverkaréttindi í þriggja vikna námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem er stærsta námskeiðið sem kennt er við HR og nemendur úr flestum deildum sækja við lok fyrsta eða annars námsárs. Þar vinna nemendur í hópum undir handleiðslu kennara og sérfræðinga að þróun eigin viðskiptahugmyndar, gerð og prófun frumgerða og kynningar fyrir fjárfesta. Samkvæmt samningnum mun Hugverkastofan sjá um fræðslu um hugverkaréttindi í námskeiðinu, svo sem einkaleyfi á uppfinningum, skráð vörumerki, hönnun, viðskiptaleyndarmál, höfundarétt o.fl.
Hugverkastofan mun samkvæmt samningnum einnig sjá um fræðslu um hugverkarétt í öðrum námskeiðum, í samráði við kennara og stjórnendur viðkomandi námskeiða og námsleiða og vinna með HR að skipulagningu sérstakra námskeiða eða fyrirlestraraða um hugverkarétt. Þá skuldbindur Hugverkastofan sig til að bjóða a.m.k. einum meistaranema við lagadeild HR starfsnám við stofnunina á hverri önn. Loks munu nemendur og starfsfólk HR hafa aðgang að almennri ráðgjöf hjá Hugverkastofunni um helstu þætti hugverkaréttar með það að markmiði að styðja við nýsköpun nemenda og starfsfólks HR.
