Fréttir

KLAK – Icelandic Startup og Hugverkastofan kvitta upp á aukið samstarf

Gulleggid

Þátttakendum í hröðlum og námskeiðum á vegum KLAK – Icelandic Startup, auk starfsfólki og mentorum, verður boðið upp á fræðslu um mikilvægi hugverkaréttinda, samkvæmt nýjum samstarfssamningi sem Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startup, undirrituðu í dag. Þá mun allt að sex þátttakendum úr Hringiðu, Dafna og, eða Gullegginu verða boðið í samtalsleit varðandi einkaleyfi, sér að kostnaðarlausu. Þá tilnefnir Hugverkastofan fulltrúa í rýnihóp og dómnefnd Gulleggsins.

Gulleggið 2024 verður haldið á morgun, föstudaginn 9. febrúar, kl. 16 í Grósku. Þá kemur í ljós hvert þeirra tíu liða sem komust í úrslit Gulleggsins ber sigur úr býtum í ár.