Fréttir
Upplýsingar um hugverkaréttindi birt á island.is

Einstaklingar og fyrirtæki geta nú nálgast upplýsingar um einkaleyfi, skráð vörumerki og hönnun í sinni eigu á Mínum síðum island.is með sama hætti og t.d. upplýsingar um fasteignir og ökutæki. Á næstu mánuðum er stefnt að því að flest bréf og tilkynningar Hugverkastofunnar til viðskiptavina verði send í stafrænt pósthólf á island.is svo sem áminningar um endurnýjun vörumerkja og hönnunar, tilkynningar um höfnun skráningar o.fl.
Birting upplýsinga um hugverkaréttindi er hluti af stafrænni vegferð Hugverkastofunnar og hefur verið unnið síðustu misseri í góðu samstarfi við Stafrænt Ísland, Hugsmiðjuna, Origo og Sensa. Vefþjónustur sem Sensa hefur verið þróað í tengslum við verkefnið eru einnig notaðar til að birta upplýsingar um íslensk hugverkaréttindi á vef Hugverkastofunnar, Hugverkastofnunar Evrópusambandsins EUIPO, Alþjóðahugverkastofnunarinnar WIPO auk þess sem nokkur erlend einkafyrirtæki sem veita sérhæfða leitarþjónustu fyrir hugverkaréttindi um allan heim nýta sömu lausnir.
Birting hugverkaréttinda á island.is eru fjórða tæknilausn Stafræns Íslands sem Hugverkastofan nýtir til að bæta stafræna þjónustu við viðskiptavini sína. Áður hefur stofnunin innleitt innskráningarþjónustu fyrir alla notendur, stafrænt pósthólf og gagnaskiptalagið Strauminn (x-road).
