Fréttir

Vinnufundur með umboðsmönnum vörumerkja og einkaleyfa

Pétur Vilhjálmsson08. febrúar 2024Þjónusta
Hopmynd Landscape

Fulltrúar stærstu umboðsmannaskrifstofa landsins heimsóttu Hugverkastofuna í dag, þar sem farið var yfir helstu stafrænu verkefnin sem verður unnið í á árinu. Þar fara hæst Mínar síður - þar sem sérstök áhersla verður lögð á þarfir og væntingar stórnotenda - og stafræn Hugverkatíðindi. Einnig fengu gestir að skyggnast inn í nýtt rannsóknarkerfi vörumerkja sem var tekið í notkun í nóvember 2023 og hefur þegar bætt gæði rannsókna og samræmt þær auk þess að auka skilvirkni og rannsóknarhraða verulega.

Vinnustofan var mjög ánægjuleg og og munu athugasemdir og óskir viðskiptavina koma að góðu gagni við að þróa áðurnefndar lausnir og fleiri til á næstu mánuðum.