Fréttir
Aukin nýsköpun í Kína og Indlandi knýr fjölgun einkaleyfisumsókna á heimsvísu

Sótt var um meira 3,5 milljónir einkaleyfa árið 2023 í heiminum öllum samkvæmt nýútkominni skýrslu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO – World Intellectual Property Organization) og hafa einkaleyfisumsóknir aldrei verið fleiri. Langflestar umsóknir eru frá Kína, eða 1,6 milljónir og næstflestar frá Bandaríkjunum (518.364), þá koma Japan (414.413), S-Kórea (287.954), Þýskaland (133.053) og Indland (64.480). Mest fjölgun milli ára var í einkaleyfisumsóknum frá Indlandi eða 16%.
Fram kemur í skýrslunni að árið 2023 séu 85 einkaleyfisumsóknir skráðar frá íslenskum aðilum, sem er 11,5% fækkun frá fyrra ári. Í heildina er Ísland í 77. sæti lista yfir þau lönd sem áttu flestar einkaleyfisumsóknir á heimsvísu árið 2023 og í 19. sæti miðað við mannfjölda. Nauðsynlegt er að slá þann varnagla að nokkuð af ísraelskum umsóknum eru skráðar íslenskar, með íslenska landskóðann „IS“, í erlendum gagnabönkum.
Umsóknum um skráð vörumerki og hönnun fækkaði nokkuð á heimsvísu árið 2023 samkvæmt skýrslunni.
Staða Íslands í skýrslu WIPO
Tölfræði varðandi umsóknir og veitt réttindi hjá Hugverkastofunni
