Fréttir
EPO Patent Index 2021: Metfjöldi íslenskra einkaleyfisumsókna

Metfjöldi einkaleyfisumsókna barst frá íslenskum aðilum til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) árið 2021. 62 einkaleyfisumsóknir voru lagðar inn af íslenskum aðilum til EPO á árinu 2021 sem er aukning um 51,2% milli ára. Þetta kemur fram í nýrri tölfræði EPO sem var birt í dag.
- Íslenskum einkaleyfisumsóknum fjölgaði úr 40 í 62 sem er aukning um 51,2% milli ára.
- Ísland er með 168 umsóknir á hverja milljón íbúa sem er hærra en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins (155).
- Alls fjölgaði umsóknum til EPO um 4,5% milli ára.
- Mikil fjölgun umsókna á sviði stafrænnar tækni og heilsutækni.
- Flestar umsóknir koma frá Bandaríkjunum en mesta fjölgunin frá Kína.
- Kínverska tæknifyrirtækið Huawei helsti umsóknaraðilinn en þar á eftir koma suður kóresku fyrirtækin Samsung og LG.
Íslenskum umsóknum fjölgar mikiðEftir 20% fækkun umsókna árið 2020 hefur umsóknarfjöldi íslenskra fyrirtækja tekið við sér þar sem aldrei hafa fleiri íslenskar umsóknir borist EPO en á árinu 2021. Flestar íslenskar umsóknir árið 2021 voru á sviði læknisfræðilegrar tækni (30,6%) en einnig var stór hluti umsókna á sviði annarra sérhæfðra véla (17,7%).
Alls fjölgaði einkaleyfisumsóknum hjá EPO um 4,5% milli ára og hefur umsóknarfjöldinn náð sér á strik eftir fækkun árið 2020 sem mátti rekja til heimsfaraldurs COVID-19. Aukinn fjölda umsókna má meðal annars rekja til fjölda einkaleyfisumsókna á sviði stafrænnar tækni og heilsutækni.
Mikill vöxtur í stafrænni tækni og heilsutækniMikil aukning var í fjölda einkaleyfa á sviði stafrænna samskipta (+9,4%) og tölvutækni (+9,7%). Stafræn tækni er nú helsta tæknisvið einkaleyfisumsókna EPO ásamt læknisfræðilegri tækni, en síðustu ár hefur stór íslenskra umsókna komið frá síðarnefnda tæknisviðinu. Töluverða aukningu var líka að sjá á sviði hljóð- og myndmiðlunar (+24%) og hálfleiðara (+21%) Aukna virkni var líka að sjá á sviði lyfjafræði (+6,9%) og líftækni (+6,6%), en það má meðal annars rekja til aukinnar nýsköpunar á sviði bóluefnaþróunar.

Mestur vöxtur hjá kínverskum fyrirtækjumLíkt og í fyrra koma flestar umsóknir frá Bandaríkjunum (með um 25% umsókna), en þar á eftir koma Þýskaland (14%), Japan (11%), Kína (9%) og Frakkland (6%). Mesta aukningin kom frá Kína, en umsóknum þaðan fjölgaði um 24% milli ára.
Ísland er með 168 einkaleyfisumsóknir á hverja milljón íbúa sem er yfir meðaltali Evrópusambandsins (155 umsóknir á hverja milljón íbúa) en nokkuð undir Sviss sem er með flestar umsóknir á hverja milljón íbúa, eða 969. Þar á eftir koma Svíþjóð (488), Danmörk (454), Holland (383) og Finnland (380).

Huawei helsti umsækjandinnLíkt og árið 2019 var kínverska tæknifyrirtækið Huawei helsti einstaki umsækjandinn hjá EPO árið 2021. Þar á eftir voru suður-kóresku tæknifyrirtækin Samsung og LG. Ericsson og Siemens voru í 4. og 5. sæti listans. Af tíu efstu fyrirtækjunum voru fjögur frá Evrópu, tvö frá Suður-Kóreu, tvö frá Bandaríkjunum, eitt frá Kína og eitt frá Japan.

Evrópska einkaleyfastofan er ein stærsta alþjóðastofnun í Evrópu með rúmlega 7 þúsund starfsmenn frá 35 löndum en höfuðstöðvar hennar eru í München í Þýskalandi. Stofnunin er ein virtasta stofnun heims á sviði hugverkaréttinda en Ísland gerðist aðili að EPO árið 2004. Síðan þá hefur fjöldi staðfestra einkaleyfa hér á landi sem koma í gegnum EPO aukist gríðarlega en árið 2021 tóku rúmlega 1.400 evrópsk einkaleyfi gildi hér á landi.
