Fréttir
Fjöldi einkaleyfisumsókna íslenskra aðila til EPO breytist lítið

Evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) bárust í fyrra 48 íslenskar umsóknir um evrópsk einkaleyfi. Það eru fleiri umsóknir en hafa að jafnaði borist frá íslenskum aðilum síðustu tíu ár en nokkuð færri en metárið 2021, þegar 63 umsóknir bárust. Sé miðað við umsóknir á hverja milljón íbúa bárust 123 umsóknir frá Íslandi í fyrra, sem er nokkuð neðan við meðaltal aðildarríkja EPO sem er 134 umsóknir á hverja milljón íbúa. Þetta kemur fram í tölfræðiúttekt EPO fyrir árið 2022 (EPO Patent Index 2022) sem var birt nýlega á vefnum.
Alls voru íslenskum aðilum veitt 15 evrópsk einkaleyfi árið 2022. Þau hafa ekki verið færri frá árinu 2014 og um er að ræða mikla fækkun frá árinu 2020 þegar íslenskum aðilum voru veitt 41 einkaleyfi. Heilt yfir fækkaði veittum einkaleyfum EPO um tæp 25% á milli ára.
Flestar einkaleyfisumsóknir íslenskra aðila til EPO í fyrra voru á sviði upplýsingatækniaðferða í stjórnun (e. IT methods for management), alls tíu talsins. Slíkum umsóknum fjölgaði mikið á árinu 2022 en aðeins tvær slíkar umsóknir bárust frá íslenskum aðilum árið 2021 og engar næstu þrjú ár á undan. Næstflestar umsóknir bárust á sviði heilbrigðistækni (e. medical technology), eða níu umsóknir. Slíkar umsóknir hafa ekki verið færri frá íslenskum aðilum í tíu ár og voru ellefu árið 2021.
Alls fjölgaði einkaleyfisumsóknum til EPO um 2,5% milli ára og hafa þær aldrei verið fleiri. Fjölgunina má einkum rekja til kínverskra umsókna sem fjölgaði um 15% og bandarískra sem fjölgaði um tæp 3%. Fjöldi evrópskra umsókna breyttist lítið milli ára. Flestar umsóknir bárust frá Bandaríkjunum, Þýskalandi, Japan, Kína og Frakklandi. Aðeins eitt evrópskt fyrirtæki, Ericsson, var meðal fimm stærstu umsækjendanna sem voru auk þess Huawei, LG, Qualkomm og Samsung. Flestar umsóknir bárust á sviði stafrænna samskipta (e. digital communications), heilbrigðistækni og tölvutækni (e. computer technology). Í tíu stærstu flokkunum fjölgaði umsóknum mest (18%) á sviði raftækja og raforku (e. electrical machinery, appartus, energy), m.a. vegna mikillar fjölgunar umsókna á sviði rafhlaða. Umsóknum fjölgaði einnig mikið, eða um 11% á sviði líftækni (e. biotechnology).
Evrópska einkaleyfastofan er ein stærsta alþjóðastofnun í Evrópu með um 6.300 starfsmenn frá 44 löndum en höfuðstöðvar hennar eru í München í Þýskalandi. Ísland gerðist aðili að stofnuninni árið 2004 og síða hefur fjöldi staðfestra evrópskra einkaleyfa hér á landi aukist mikið en árið 2022 tóku rúmlega 900 evrópsk einkaleyfi gildi hér á landi.



