Fréttir
Indverskum og kínverskum einkaleyfisumsóknum fjölgar

Umsóknir um einkaleyfi í heiminum voru fleiri árið 2022 en árið áður og fjölgunina má að miklu leyti rekja til fleiri indverskra og kínverskra umsókna. Umsóknum um skráningu vörumerkja og hönnunar fækkaði hins vegar á milli ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýútkominni skýrslu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO – World Intellectual Property Organization) um skráningu hugverkaréttinda í heiminum árið 2022.
Alls voru lagðar inn 3,46 milljónir einkaleyfisumsókna hjá hugverkastofum heimsins árið 2022, sem er 1,7% fjölgun frá árinu áður. Tæplega helmingur þessara umsóknar eru kínverskar og þeim fjölgaði um 3,1% milli ára. Næstflestar einkaleyfisumsóknir komu frá Bandaríkjunum, þá Japan, S-Kóreu og Þýskalandi. Indverskum einkaleyfisumsóknum fjölgaði mest eða um 31,6% milli ára.
Um 1,8 milljón einkaleyfi voru veitt árið 2022 og alls eru um 17,3 milljónir einkaleyfa í gildi í heiminum.
Athygli vekur að aðeins 17,1% uppfinningamanna sem skráðir voru fyrir alþjóðlegum PCT-einkaleyfisumsóknum sem birtar voru árið 2022 eru konur. Skást er kynjahlutfallið í umsóknum frá Kína (47,9%) og Tyrklandi (34,0%). Ef horft er til flokkunar umsókna er kynjahlutfallið skást í líftækni þar sem konur eru 30% uppfinningamanna.
Umsóknum um skráningu vörumerkja fækkaði um 14,5% í heiminum árið 2022, í kjölfar mjög mikillar fjölgunar umsókna árin 2020 og 2021 þegar COVID-19 heimsfaraldurinn ýtti undir markaðssetningu á fjölbreyttum nýjum vörum og þjónustu. Að sama skapi fækkaði umsóknum um skráningu hönnunar um 2,1%, eftir mikla fjölgun umsókna undanfarin fjögur ár.
Nánari upplýsingar um stöðu alþjóðlegra hugverkaréttinda er að finna á mælaborði WIPO. Upplýsingar um umsóknir um skráningu hugverkaréttinda og skráningar í gildi á Íslandi má nálgast á mælaborði á vef Hugverkastofunnar.
