Fréttir

Ísland eftirbátur annarra Norðurlanda í umsóknum um evrópsk einkaleyfi

Eiríkur Sigurðsson20. mars 2024EinkaleyfiTölfræði
Island Og Nordurlondin

Evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) bárust í fyrra 42 umsóknir um evrópsk einkaleyfi frá íslenskum aðilum. Það eru heldur færri umsóknir en árið 2022 þegar 48 umsóknir bárust frá Íslandi, en mikil fækkun frá árinu 2021 þegar 63 íslenskar umsóknir bárust stofnuninni. Þetta kemur fram í EPO Patent Index 2023 sem EPO birti í vikunni.

Þróun fjölda einkaleyfisumsókna og veittra einkaleyfa íslenskra aðila til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) 2014 2023.
Þróun fjölda einkaleyfisumsókna og veittra einkaleyfa íslenskra aðila til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) 2014 2023.

Ef miðað er við höfðatölu bárust 11,4 umsóknir frá Íslandi um evrópsk einkaleyfi á hverja hundrað þúsund íbúa árið 2023. Það eru mun færri umsóknir miðað við höfðatölu en frá hinum Norðurlöndunum, nema Noregi (12,9), og heldur færri en bárust að meðaltali frá löndum Evrópusambandsins (15,3). Svíþjóð (49,5), Danmörk (44,5) og Finnland (42,2) raða sér í annað, þriðja og fjórða sætið yfir þau lönd sem sendu inn flestar umsóknir. Langflestar umsóknir, miðað við höfðatölu, bárust frá Sviss, eða 108,5 á hverja hundrað þúsund íbúa.

Alls voru íslenskum aðilum veitt 36 evrópsk einkaleyfi árið 2023 sem er mikil fjölgun frá árinu áður þegar aðeins 15 einkaleyfi voru veitt íslenskum aðilum og þó nokkuð yfir meðaltali síðustu tíu ára (28). Flestar einkaleyfisumsóknir íslenskra aðila til EPO í fyrra voru á sviði læknisfræðilegrar tækni (11), næstflestar á sviði mælitækja (8) og þriðju flestar á sviði lyfja (5).

Skipting einkaleyfisumsókna íslenskra aðila til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) 2023.
Skipting einkaleyfisumsókna íslenskra aðila til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) 2023.

Alls bárust EPO 199.275 umsóknir um einkaleyfi árið 2023 og fjölgaði þeim um 2,9% milli ára og hafa aldrei verið fleiri. Flestar umsóknir bárust frá Bandaríkjunum, Þýskalandi, Japan, Kína og S-Kóreu. Stærstu umsækjendurnir voru Huawei, Samsung, LG, Qualkomm og Ericsson. Flestar umsóknir bárust á sviði stafrænna samskipta, læknisfræðilegrar tækni og tölvutækni. Í tíu stærstu flokkunum fjölgaði umsóknum mest á sviði raftækja og raforku (12,2%), m.a. vegna mikillar fjölgunar umsókna á sviði rafhlaða (28%). Umsóknum fjölgaði einnig mikið á sviði líftækni (5,9%). Konur voru meðal uppfinningamanna í 27% einkaleyfisumsókna frá Evrópu.

Evrópska einkaleyfastofan er ein stærsta alþjóðastofnun í Evrópu með um 6.300 starfsmenn en höfuðstöðvar hennar eru í München í Þýskalandi. Ísland gerðist aðili að stofnuninni árið 2004 og síðan hefur fjöldi staðfestra evrópskra einkaleyfa hér á landi aukist mikið en árið 2023 tóku 993 evrópsk einkaleyfi gildi hér á landi.