Fréttir

Ísland í 22. sæti í nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) 2024

Eiríkur Sigurðsson30. september 2024Alþjóðlegt samstarfTölfræði
WII2024

Ísland er í tuttugasta og öðru sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO), Global Innovation Index 2024 og lækkar um tvö sæti frá í fyrra. Ísland er í 15. sæti þegar er horft til aðstæðna til nýsköpunar en í 29. sæti fyrir afrakstur nýsköpunar. Sviss, Svíþjóð, Bandaríkin, Singapore og Bretland skipa fimm efstu sæti listans í ár, líkt og í fyrra. Ísland er nú í 14. sæti listans af 39 Evrópuþjóðum og skorar heldur hærra en búast mætti við, miðað við þjóðarframleiðslu á mann.

Nýsköpunarvísitalan er sett saman úr 78 mismunandi mælikvörðum sem tengjast annars vegar aðstæðum til nýsköpunar og hins vegar afrakstri nýsköpunar. Þegar litið er til einstakra mælikvarða skorar Ísland hæst allra fyrir rafmagnsframleiðslu á íbúa, innlenda kvikmyndaframleiðslu, notkun umhverfisvænna orkugjafa, fjölda birtra vísindagreina á íbúa og fjölda samninga um áhættufjármagn miðað við landsframleiðslu. Þá stendur Ísland vel varðandi stöðugt viðskiptaumhverfi (3. sæti), útgjöld til menntamála (5. sæti) og vænta lengd skólagöngu (7. sæti). Ísland skorar hins vegar lágt fyrir stærð innanlandsmarkaðar miðað við þjóðarframleiðslu (128. sæti), þjóðarframleiðslu miðað við orkunotkun (126. sæti), hlutfall erlendrar fjárfestingar af þjóðarframleiðslu (119. sæti), hlutfall útflutnings skapandi greina af heildarviðskiptum (97. sæti), fjölbreytni innlendrar iðnaðarframleiðslu (96. sæti) og hlutfall háskólanema sem útskrifast úr STEM-greinum (96. sæti).

Norðurlöndin raðast almennt hátt á listanum þar sem Svíþjóð er í næstefsta sæti, Finnland í 7. sæti, Danmörk í 10. sæti og Noregur næst fyrir ofan Ísland í 21. sæti listans.

Ítarlegar upplýsingar um stöðu Íslands í nýsköpunarvísitölunni er að finna hér.

Um nýsköpunarvísitölu WIPO

Nýsköpunarvísitala er gefin út af Alþjóðahugverkastofnuninni, (World Intellectual Property Organization, WIPO) í samstarfi við Portulans stofnunina og kemur nú út í 17. sinn. Vísitalan byggir á 78 fjölbreyttum mælikvörðum frá alþjóðlegum stofnunum og einkaaðilum sem eru notaðir til að meta nýsköpun og nýsköpunarumhverfi í 130 löndum. Frá því að nýsköpunarvísitalan var fyrst birt árið 2007 hefur hún mótað viðmið um mælingar á nýsköpun og verið grundvöllur stefnumótunar stjórnvalda víða um heim. Frekari upplýsingar um einstaka mælikvarða er að finna hér.

Um Alþjóðahugverkastofnunina (WIPO – World Intellectual Property Organization)

Alþjóðahugverkastofnunin er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur verið aðili að henni frá árinu 1986. Stofnunin ber ábyrgð á þeim samningum sem skapa samræmda umgjörð um hugverkaréttindi, s.s. alþjóðleg skráningarferli, útfærslu umsókna og skráninga og hlutverk hugverkastofa í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá. Hugverkastofan á fulltrúa á þeim fundum sem varða vörumerki, einkaleyfi og hönnun og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.