Fréttir

Ísland í tuttugasta sæti nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar WIPO

Eiríkur Sigurðsson27. september 2023Tölfræði
WIPO (1)

Ísland heldur tuttugasta sætinu á lista yfir mest nýskapandi ríki heims samkvæmt nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO), Global Innovation Index 2023, sem birt var í dag. Sviss, Svíþjóð, Bandaríkin, Bretland og Singapore skipa fimm efstu sæti listans í ár. Hin Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin hækka öll á listanum frá í fyrra og Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru á meðal topp-tíu landa á listanum.

Vísitalan er byggð á mati á 80 mismunandi þáttum sem tengjast annars vegar aðstæðum til nýsköpunar og hins vegar afrakstri nýsköpunar. Ísland er í 12. sæti listans af 39 Evrópuþjóðum, líkt og í fyrra, og skorar hærra en búast mætti við miðað við þjóðarframleiðslu. Aðstæður til nýsköpunar eru taldar hafa batnað á milli ára hér á landi en hins vegar mælist afrakstur nýsköpunar heldur minni en áður.

Almennt skorar Ísland yfir meðaltali í þáttum sem tengjast stofnunum, innviðum og þroska viðskiptaumhverfis (e. business sophistication) og er efst á lista fyrir rafmagnsframleiðslu á íbúa, innlenda kvikmyndaframleiðslu, skráningar á .biz, .com, .info, .net og .org lénum, greiðslur fyrir hugverkaréttindi, fjölda birtra vísindagreina á íbúa og fjölda áhættufjárfestinga.

Ísland skorar hins vegar lágt í flokkunum: mannauður og rannsóknir, þekking og tækniframleiðsla og þroski markaðar (e. market sophistication). Meðal einstakra þátta sem Ísland skorar lágt í eru stærð innanlandsmarkaðar miðað við þjóðarframleiðslu (128. sæti), hlutfall erlendrar fjárfestingar af þjóðarframleiðslu (128. sæti), þjóðarframleiðsla miðað við orkunotkun (125. sæti), fjöldi hönnunarskráninga (97. sæti), fjölbreytni iðnaðarframleiðslu (97. sæti) og hlutfall háskólanema sem útskrifast úr verkfræði-, raunvísinda- og tæknigreinum (87. sæti).

Ítarlegar upplýsingar um stöðu Íslands á listanum er að finna hér.

Helstu niðurstöður skýrslu WIPO um stöðu nýsköpunar í heiminum 2022 sem gefin er út í tengslum nýsköpunarvísitöluna eru:

  • Mælikvarðar fyrir rannsóknir og þróun (R&Þ, birtingu vísindagreina, fjölda samninga um áhættufjárfestingar (en ekki verðmæti þeirra) og fjölda einkaleyfa hækkuðu frá fyrra ári og hafa aldrei verið hærri. Vöxturinn var hins vegar hægari en árið 2021.
  • Árið 2022 náðu útgjöld fyrirtækja sem eyða mestu í rannsóknir og þróun 1,1 milljarði Bandaríkjadala, sem er sögulegt hámark. Þessi fyrirtæki juku útgjöld til rannsókna og þróunar um um 7,4% árið 2022, samanborið við 15% vöxt árið 2021.
  • Aukin notkun gervigreindar endurspeglast í því að mestur vöxtur varð í rannsókna- og þróunarkostnaði í iðnaði tengdum örgjörvum og skjákortum. Aðrir geirar sem drógu saman seglin í rannsókna- og þróunarkostnaði í heimsfaraldrinum, svo sem bílaframleiðsla, ferðamanna- og tómstundageirinn, bættu í R&Þ fjárfestingar árið 2022.
  • Samkvæmt bráðabirgðatölum er áætlað að fjármagn sem fór til rannsókna og þróunar á heimsvísu hafi aukist að raungildi árið 2022. Umtalsverðar aukning varð á fjárfestingum til rannsókna og þróunar í Japan og S-Kóreu, og heldur minni í Þýskalandi, sem vegur á móti lækkun í öðrum hagkerfum.
  • Áhættufjárfestingar drógust mikið saman á árinu 2022, eða um nær 40% frá árinu 2022, þegar R&Þ fjárfestingar voru óvenju miklar á heimsvísu. Afríka er eina svæðið þar sem ekki varð samdráttur árið 2022.
  • Horfur fyrir áhættufjárfestingar fyrir árið 2023 og 2024 eru óljósar og líklega munu háir vextir hafa áhrif á fjármagn til nýsköpunar.
  • Mælikvarðar fyrir upplýsingatækni, heilsu- og orkugeirann eru áfram jákvæðir.
  • Upptaka á nýrri tækni gengur almennt vel í heiminum þó enn gangi hægt að innleiða tækninýjungar á borð við rafmagnsbíla og nýjar krabbameinsmeðferðir.

Um Alþjóðahugverkastofnunina (WIPO – World Intellectual Property Organization)

Alþjóðahugverkastofnunin er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur verið aðili að henni frá árinu 1986. Stofnunin ber ábyrgð á þeim samningum sem skapa samræmda umgjörð um hugverkaréttindi, s.s. alþjóðleg skráningarferli, útfærslu umsókna og skráninga og hlutverk hugverkastofa í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá. Hugverkastofan á fulltrúa á þeim fundum sem varða vörumerki, einkaleyfi og hönnun og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.