Konur enn í miklum minnihluta í tækninýsköpun samkvæmt nýrri skýrslu Evrópsku einkaleyfastofunnar

03. mars 2026Alþjóðlegt samstarfTölfræði
Evrópska einkaleyfastofan (EPO) birti í dag nýja og ítarlega skýrslu um hlut kvenna í einkaleyfisumsóknum, tæknidrifnu frumkvöðlastarfi og STEM-greinum í Evrópu. Skýrslan, Advancing women in STEM, er gefin út í aðdraganda alþjóðlegs baráttudags kvenna og byggir á víðtækum gögnum úr gagnagrunnum EPO.
Meginniðurstaða skýrslunnar er að konur voru aðeins 13,8% evrópskra uppfinningamanna hjá EPO árið 2022, samanborið við 13% árið 2019. Evrópa stendur sig heldur skár en Japan (10,9%) en verr en Bandaríkin (16,7%) þegar kemur að hlutfalli kvenna meðal uppfinningamanna.
Þá eru konur meðal stofnenda í 13,5% sprotafyrirtækja sem eiga evrópsk einkaleyfi og innan við einn af hverjum tíu stofnendum fyrirtækja í djúptækni.
Ísland undir Evrópumeðaltali
Fram kemur í skýrslunni að hlutfall kvenna meðal íslenskra uppfinningamanna var metið 11,9% á tímabilinu 2018–2022. Staða Íslands er því enn verri en Evrópu í heild hvað þetta varðar. Þó eru 43% þeirra sem útskrifast með STEM-háskólamenntun á Íslandi konur.
Í öllum aðildarlöndum EPO eru fáar konur meðal doktorsmenntaðra uppfinningamanna í einkaleyfisumsóknum þrátt fyrir að hlutfall kvenna meðal útskrifaðra doktorar sé hátt. Þetta kynjabil heldur áfram að víkka á hverju stigi starfsferilsins. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að greinilegt sé að minni hlutur kvenna en karla í einkaleyfisumsóknum stafi fyrst og fremst af félagslegum, stofnanalegum og efnahagslegum þáttum sem móta starfsumhverfið.
Mikill munur eftir tæknisviðum
Hlutur kvenna í einkaleyfisumsóknum er mjög mismunandi eftir tæknisviðum. Hlutfall kvenkyns uppfinningamanna er hæst í lyfjafræði (34,9%), líftækni (34,2%) og matvælaefnafræði (32,3%), sem endurspeglar tiltölulega sterka stöðu kvenna í lífvísindum. Á hinn bóginn eru fáar konur meðal uppfinningamanna í ýmsum verkfræðigreinum þar sem einkaleyfisumsóknir eru algengar. Langhæsta hlutfall kvenna uppfinningamanna er í einkaleyfisumsóknum frá háskólum og opinberum rannsóknastofnunum (24,4%) á meðal hlutfallið er mjög lágt hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
