Fréttir
Metfjöldi vörumerkjaumsókna í einum mánuði

Hugverkastofunni bárust 116 umsóknir um skráningu vörumerkja frá innlendum aðilum í október. Stofnuninni hafa ekki borist fleiri innlendar umsóknir í einum mánuði frá árinu 2000.
Á fyrstu tíu mánuðum ársins hefur Hugverkastofunni borist 731 umsókn frá íslenskum aðilum, samanborið við 684 á sama tímabili í fyrra. Það er um 7% fjölgun sem er framhald af þróun undanfarinna ára. Allt árið 2024 bárust 776 íslenskar vörumerkjaumsóknir og árið 2025 voru þær 809, eða 4% fleiri en árið á undan. Af þeim tæplega 67.000 vörumerkjum sem skráð eru hér á landi eru nú um 7.500 í eigu íslenskra aðila.
Hér er hægt að skoða tölfræði um fjölda umsókna og skráninga vörumerkja og annarra skráðra hugverkaréttinda hjá Hugverkastofunni.
