Fréttir
Ríflega 10% evrópskra uppfinninga frá evrópskum háskólum

Í nýrri skýrslu sem Evrópska einkaleyfastofan (EPO) kynnti í dag kemur fram að einkaleyfisumsóknum frá evrópskum háskólum hafi fjölgað verulega síðastliðna tvo áratugi og þær séu nú ríflega 10% allra umsókna sem berast stofnuninni frá evrópskum aðilum. Meðal mikilvægra uppfinninga sem rekja má til evrópskra háskóla eru uppfinningar á sviði bóluefna, mRNA, efnisvísinda og leysigeisla.
Einnig var greint frá því í dag að DeepTech leitarvél Evrópsku einkaleyfastofunnar hafi verið uppfærð með upplýsingum um 900 evrópska háskóla og 1.500 sprotafyrirtæki sem eiga uppruna sinn í evrópskum háskólarannsóknum. Leitarvélin var þróuð til að auðvelda fjárfestum og öðrum að finna áhugaverð sprotafyrirtæki og háskóla sem lagt hafa inn einkaleyfisumsóknir á sviði djúptækni hjá stofnuninni.
Skýrslan var unnin í samstarfi við Fraunhofer stofnunina í Þýskalandi og er fyrsta heildargreining sem birt er á einkaleyfisumsóknum evrópskra háskóla. Hún nær til háskóla sem lögðu inn umsóknir um einkaleyfi til Evrópsku einkaleyfastofunnar á tímabilinu 2000-2020. Auk umsókna sem lagðar eru inn af háskólunum sjálfum er í skýrslunni fjallað um umsóknir sem berast frá aðilum tengdum háskólaumhverfinu þar sem a.m.k. einn þeirra uppfinningamanna sem skráðir eru fyrir umsókninni eru vísindamenn sem starfa innan háskóla.
„Það er mikil hefð fyrir öflugum rannsóknum í evrópskum háskólum en þrátt fyrir það eigum við stundum í vandræðum með að breyta rannsóknum í viðskiptalegan ávinning,“ segir António Campinos, forstjóri Evrópsku einkaleyfastofunnar í tilkynningu. „Þessi rannsókn varpar ljósi á einkaleyfisumsóknir um uppfinningar sem gerðar hafa verið í evrópskum háskólum og er mikilvægt innlegg í stefnumörkun evrópskra háskóla og stjórnvalda.“
Háskólarnir sjálfir voru ekki umsækjendur í tveimur þriðju þeirra einkaleyfisumsókna sem um ræðir, heldur tengdir aðila, oftast fyrirtæki. Um 30% þessara umsókna komu frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Hlutfall umsókna sem berast frá háskólunum sjálfum um einkaleyfi á uppfinningum sem byggja á háskólarannsóknum hækkaði mikið á tímabilinu, eða úr 24% árið 2000 í 45% árið 2019. Þetta bendir til að stefnubreyting hafi átt sér stað varðandi vernd hugverkaréttinda innan evrópskra háskóla og meiri áhersla sé nú lögð á það en áður að þeir eigi hugverkarétt að þeim uppfinningum sem háskólarannsóknir leiða af sér.
Flestar umsóknir um einkaleyfi á grunni háskólarannsókna koma frá Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Ítalíu og 5% evrópskra háskóla eiga yfir helming allra umsókna. Meðal þeirra eru Háskólinn í Grenoble, Tækniháskólinn í Munchen, Oxford háskóli, Svissneska alríkistæknistofnunin í Zurich, Kaupmannahafnarháskóli og Polytechnic háskólinn í Mílanó. Meðal þess sem einkennir þessa háskóla eru að þeir leggja áherslu á raunvísindi og tækni og innan þeirra starfa öflugar tækniyfirfærsluskrifstofur. Í skýrslunni kemur einnig fram að rannsóknasamstarf sem leiðir til einkaleyfisumsókna er yfirleitt innan sama lands sem bendir til að tækifæri sé til að auka alþjóðlegt rannsóknasamstarf innan Evrópu.
Um Evrópsku einkaleyfastofuna (European Patent Office)
Evrópska einkaleyfastofan (EPO) er ein stærsta stjórnsýslustofnun Evrópu með 6.300 starfsmenn. Höfuðstöðvar hennar eru í Munchen en auk þess er stofnunin með skrifstofur í Berlín, Brussel, Haag og Vín. Stofnunin var sett á fót til að efla samstarf á sviði einkaleyfa í Evrópu. Ísland varð aðili að stofnuninni árið 2004. Í gegnum miðlægt einkaleyfaútgáfuferli EPO geta uppfinningamenn fengið öfluga einkaleyfisvernd í allt að 45 löndum, sem nær yfir markað með um 700 milljónir manna. EPO er einnig leiðandi stofnun í heiminum á sviði einkaleyfaupplýsinga og leitar.
