Fréttir
Andmæli gegn skráningu ZOOM tekin til greina að hluta

Þann 1. júlí sl. úrskurðaði Hugverkastofan í andmælamáli nr. 6/2024 varðandi alþjóðlega skráningu nr. 1267107 (V0122368), merkið ZOOM (orð- og myndmerki).
Merkið var skráð á sínum tíma í flokkum 9 og 15 eftir synjun að hluta á grundvelli skorts á sérkenni og aðgreiningarhæfi og ruglingshættu við merkið Signature Zoom (orðmerki) nr. V0118659 fyrir tilteknar vörur í flokki 9.
Í andmælum var byggt á því að andmælandi ætti betri rétt til merkisins á grundvelli notkunar. Vísað var til 1. – 3. tl. 14. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, sbr. 3. og 4. gr. sömu laga og var talsvert magn notkunargagna lagt fram. Engin mótmæli bárust frá eiganda í málinu og var því úrskurðað um andmælin á grundvelli gagna frá andmælanda eingöngu.
Hugverkastofan taldi ljóst af framlögðum gögnum að andmælandi hefði öðlast vörumerkjarétt á grundvelli notkunar í skilningi 2. tl. 1. mgr. 3. gr. vml. til orðmerkisins ZOOM fyrir fjarfunda- og samskiptabúnað og -hugbúnað. Aftur á móti var ekki talið að sýnt hefði verið fram á að merkið ZOOM væri alþekkt hér á landi í skilningi 2. tl. 14. gr. vml. eða að það nyti aukinnar verndar í skilningi 3. tl. 4. gr. vml. Andmæli gegn skráningu merkisins voru því tekin til greina að hluta með vísan til 1. tl. 14. gr. vml.
Niðurstaða Hugverkastofunnar telst ekki endanleg fyrr en að tveggja mánaða áfrýjunarfresti liðnum.
