Fréttir

Ruglingshætta til staðar á milli ZARA og ZHARA

27. febrúar 2024Úrskurðir og ákvarðanir
Zhara

Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar kvað þann 13. febrúar 2024 upp úrskurð í máli nr. 5/2021. Með honum var úrskurði Hugverkastofunnar í andmælamáli nr. 3/2021 hnekkt.

Eigandi merkisins ZARA (orð- og myndmerki) nr. V0037264 andmælti á sínum tíma skráningu merkisins ZHARA (orð- og myndmerki), alþjóðleg skráning nr. 1406893. Niðurstaða Hugverkastofunnar var sú að ruglingshætta milli merkjanna væri ekki fyrir hendi þar sem heildarmynd þeirra væri ólík og þjónustulíking takmörkuð.

Niðurstöðu um hættu á ruglingi byggði áfrýjunarnefnd á því að merkið ZARA, sem aðeins væri lítillega stílfært orðmerki, hefði verið skráð hér á landi í tæp 24 ár. Merkin ZARA og ZHARA væru eins í framburði og auk þess hefði verið sýnt fram á umfangsmikla notkun merkisins ZARA hér á landi sem staðfesti að merkið væri vel þekkt í skilningi þágildandi 2. mgr. 4. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki. Merkið ZARA var þ.a.l. talið njóta verndar fyrir aðrar vörur og þjónustu en það er skráð fyrir og taldi nefndin líklegt að hinn almenni neytandi teldi merkin hafa sama viðskiptauppruna. Skráning merkisins ZHARA verður því felld úr gildi.

Hér má lesa úrskurðinn í heild sinni.