Fréttir

Skráning vörumerkisins Heiturpottur.is heldur gildi sínu

Jón Gunnarsson16. desember 2021Úrskurðir og ákvarðanir
Urskurdir Og Akvardanir Appelsinugult

Andmælin byggðu á ruglingshættu við heiti á virkri atvinnustarfsemi og að umsókn um skráningu merkisins hefði verið lögð inn í vondri trú. Engar athugasemdir bárust frá eiganda. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að andmælandi hefði ekki sýnt fram á ruglingshættu við virka atvinnustarfsemi. Þá var ekki unnt að taka ákvæði vörumerkjalaga um að umsókn hefði verið lögð inn í vondri trú til frekari skoðunar þar sem ákvæðinu verður ekki beitt um merki sem sótt var um og skráð fyrir 1. september 2020.

Lesa má úrskurð nr. 7/2021 í heild sinni hér.