Fréttir

Skráning vörumerkisins noontec felld úr gildi

Jón Gunnarsson15. desember 2021Úrskurðir og ákvarðanir
Noontec

Hugverkastofan hefur tekið til greina kröfu um að skráning merkisins noontec (orð- og myndmerki), sbr. alþjóðleg skráning nr. 906291 (V0084912), yrði felld úr gildi. Krafan byggði á því að notkunarskyldu eiganda hefði ekki verið fullnægt. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að í ljósi þess að engar athugasemdir bárust frá eiganda merkisins bæri hann sjálfur hallann af skorti á sönnun hvað notkun merkis hans varðar.

Lesa má ákvörðun nr. 5/2021 í heild sinni hér.