Fréttir

Skráningar vörumerkjanna Grænt bílalán, Grænt lán og Græn fjármögnun felldar úr gildi

Jón Gunnarsson15. desember 2021Úrskurðir og ákvarðanir
Urskurdir Og Akvardanir Blatt

Hugverkastofan hefur tekið til greina kröfu um að skráningar merkjanna Grænt bílalán (orðmerki) nr. V0084605, Grænt lán (orðmerki) nr. V0084604 og Græn fjármögnun (orðmerki) nr. V0084603 yrðu felldar úr gildi. Krafan byggði á því að merkin þrjú hefðu öðlast almenna merkingu fyrir þá þjónustu sem skráningarnar tóku til vegna athafna eða athafnaleysis eiganda, auk þess sem notkunarskyldu eiganda hefði ekki verið fullnægt. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að beiðandi hefði ekki sýnt fram á með tilskyldum hætti að merkin hefðu misst sérkenni og aðgreiningarhæfi vegna athafna eða athafnaleysis eiganda, en í ljósi þess að engar athugasemdir bárust frá eiganda bæri hann sjálfur hallan af skorti á sönnun hvað notkun merkja hans varðar.

Lesa má ákvörðun nr. 4/2021 í heild sinni hér.