Fréttir
Umsókn um skráningu orðmerkis LIVE+ IGNITE synjað
26. ágúst 2022Úrskurðir og ákvarðanir

Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar telur að heildarmynd merkjanna leiði að því líkum að hætt sé við ruglingi með merkjunum. Niðurstaða Hugverkastofunnar er staðfest.
Mál nr. 16/2019: Árnason Faktor ehf. f.h. Monster Energy Company, Bandaríkjunum gegn Hugverkastofunni vegna ákvörðunar, dags. 5. apríl 2019, um að synja umsókn um skráningu merkisins LIVE+ IGNITE (orðmerki) nr. V0109716.
Úrskurðurinn er aðgengilegur í heild hér.