Fréttir
Umsókn um skráningu orðmerkis PIXEL synjað að hluta
04. júlí 2022Úrskurðir og ákvarðanir

Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar telur ekki að merking orðsins pixel leiði sjálfkrafa til þess að merkið teljist lýsandi í skilningi 13. gr. vml. og sé því óskráningarhæft fyrir hluta af þeim vörum sem deilt var um. Því var niðurstöðu Hugverkastofunnar hnekkt, að hluta.
Mál nr. 18/2019: Árnason Faktor ehf. f.h. Google LLC., Bandaríkjunum, gegn Hugverkastofunni vegna ákvörðunar stofnunarinnar frá 18. mars 2019 um að synja að hluta umsókn um skráningu merkisins PIXEL (orðmerki) nr. V0107620 í flokki 9.
Úrskurðurinn er aðgengilegur í heild hér.