Fréttir
Úrskurðir og ákvarðanir Hugverkastofunnar það sem af er árinu 2025

Skráning vörumerkisins REGNBOGASPRENGJUR heldur gildi sínu (1/2025)

Hugverkastofan tók ekki til greina andmæli gegn skráningu vörumerkisins REGNBOGASPRENGJUR (orð- og myndmerki), umsókn nr. V0131827. Andmælin byggðu á ruglingshættu við merkið regnbogafræ rainbow seeds frostþurrkað gotterí freeze dried candy (orð- og myndmerki) vegna sælgætis í flokki 30. Í samantekt úrskurðarins kemur fram það mat Hugverkastofunnar að náttúrufyrirbrigðið regnbogi og regnbogalitir hafi vægt sérkenni fyrir ýmsar vörur, þ.m.t. sælgæti. Það var því mat stofnunarinnar, þrátt fyrir algera vörulíkingu og væga sjón- hljóð- og merkingarlíkingu vegna sameiginlegs upphafs orðanna í merkjunum og líkindi í uppröðun lita, að umrædd líkindi með merkjunum væru það væg að heildarmynd merkjanna yrði ekki talin vera svo lík að ruglingi geti valdið, sbr. 1. tl. 14. gr. vml.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.
Skráning vörumerkisins Stanley Iceland felld úr gildi (2/2025)
Hugverkastofan tók til greina andmæli gegn skráningu vörumerkisins Stanley Iceland (orðmerki), umsókn nr. V0133761. Sótt var um skráningu merkisins af innlendum aðila fyrir ýmis drykkjarílát í flokki 21. Framleiðandi hinna þekktu „Stanley brúsa“ andmælti skráningunni á grundvelli ruglingshættu við merkið sitt. Þar sem andmælandi átti ekki vörumerkjaskráningu hér á landi var byggt á eldri vörumerkjarétti fyrir merkið Stanley á grundvelli notkunar sem Hugverkastofan féllst á eftir mat á framlögðum notkunargögnum.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.
Skráning merkisins ENOX-YADEA felld úr gildi (1/2025)
Hugverkastofan tók til greina kröfu um að skráning merkisins ENOX-YADEA (orðmerki), skráning nr. V0117660 yrði ógild. Þess var krafist að skráning merkisins yrði ógilt þar sem villast mætti á því og merkinu YADEA (orð- og myndmerki) sem hafði verið í notkun í öðru landi, þ.e. Kína, á þeim tíma sem umsókn var lögð inn og var enn í notkun þar fyrir sömu eða líkar vörur/þjónustu og merkið ENOX-YADEA óskaðist skráð fyrir og umsækjandi vissi eða hefði mátt vita um erlenda merkið, sbr. þágildandi 9. tl. 14. gr. vml. en merkið var skráð í gildistíð eldri laga. Þar sem skilyrðum ákvæðisins var talið fullnægt var krafa um ógildingu merkisins tekin til greina.
Ákvörðunina í heild má lesa hér.
Skráning myndmerkis Terramark heldur gildi sínu (3/2025)

Hugverkastofan tók ekki til greina andmæli gegn skráningu myndmerkis, sbr. alþjóðleg skráning nr. 1670491. Andmælin byggðu á ruglingshættu við merkið Togg (orð- og myndmerki) á grundvelli 3. tl. 14. gr. vml. Samkvæmt ákvæðinu má ekki skrá vörumerki ef hætt er við ruglingi á merkinu og merki sem verið hefur í notkun í öðru landi, á þeim tíma er umsókn var lögð inn eða frá forgangsréttardegi, og er enn notað þar fyrir sömu eða líkar vörur eða þjónustu og yngra merkið óskast skráð fyrir og umsækjandi var í vondri trú við skráningu og notkun merkisins. Í úrskurðinum er farið yfir öll fjögur skilyrðin sem þurfa að vera uppfyllt svo andmæli á þessum grundvelli verði tekin til greina. Að mati Hugverkastofunnar var ekkert skilyrðanna uppfyllt.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.
Skráning merkisins Wolt heldur gildi sínu (4/2025)

Hugverkastofan tók ekki til greina andmæli gegn skráningu vörumerkisins Wolt (orð- og myndmerki), sbr. alþjóðleg skráning nr. 1624046. Andmælin byggðu á ruglingshættu við merkið aha (orð- og myndmerki). Lögð voru fram notkunargögn sem Hugverkastofan mat sem svo að sýndu fram á að Aha hefði öðlast vörumerkjarétt fyrir útkeyrslu á matvöru og veitingum í flokki 39, sem skarast við þjónustu Wolt, fyrir umsóknardag hins andmælta merkis. Hins vegar féllst stofnunin ekki á að merkin væru ruglingslega lík, þrátt fyrir væga sameiginlega þætti. Þá helst vegna þess að orðhlutar merkjanna, sem eru ráðandi þættir þeirra, eiga ekkert sameiginlegt. Niðurstaðan var að skráningin skuli halda gildi sínu.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.
