Fréttir
Úrskurðir vegna ICELANDIA-merkja

Hugverkastofan ákvarðaði nýlega í máli nr. 1/2024, vegna kröfu um niðurfellingu á skráningu orð- og myndmerkisins ICELANDIA nr. V0018584 og kvað upp úrskurð í andmælamáli nr. 2/2024 vegna orðmerkisins KYNNISFERÐIR ICELANDIA nr. V0128100.
Hugverkastofan féllst á niðurfellingu skráningar á orð- og myndmerkinu ICELANDIA en andmæli vegna skráningar orðmerkisins KYNNISFERÐIR ICELANDIA voru ekki tekin til greina.
Krafa um niðurfellingu á orð- og myndmerkinu ICELANDIA nr. V0018584 byggði á því að merkið hefði ekki verið notað um fimm ára skeið eins og krafist er í 25. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki. Í slíkum málum snýst sönnunarbyrði við og er það því eiganda merkis að sanna að hann hafi notað merki í samræmi við ákvæði laganna, þ.e. tekið það í notkun innan fimm ára frá því skráningarferli lauk eða notað það á síðasta fimm ára tímabili áður en krafa um niðurfellingu er lögð fram. Þar sem engin gögn voru lögð fram um notkun merkisins var krafan tekin til greina og skráning merkisins felld úr gildi. Þeirri niðurstöðu má áfrýja til áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.
Andmæli gegn skráningu merkisins KYNNISFERÐIR ICELANDIA nr. V0128100 byggðu á ruglingshættu við nokkur skráð merki andmælanda sem innihalda orðið ICELANDIA, sem og því að andmælandi ætti betri rétt á grundvelli notkunar til merkisins ICELANDIA. Engin gögn voru lögð fram um notkun sem sýnt gátu stofnaðan vörumerkjarétt á því orði til handa andmælanda í skilningi vörumerkjalaga. Þrátt fyrir að orðið ICELANDIA kæmi fyrir í ýmsum merkjum andmælanda var það mat Hugverkastofunnar að orðið sem slíkt skorti sérkenni og aðgreiningarhæfi og væri ekki skráningarhæft þar sem það þýddi í raun Ísland, þrátt fyrir viðbótina -IA. Orðið taldist því vera lýsandi, a.m.k. fyrir uppruna vöru og/eða þjónustu og væri því veikari þáttur þeirra merkja sem til umfjöllunar voru. Ruglingshætta var því ekki talin vera til staðar. Úrskurðinum má áfrýja til áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
Úrskurðinn í heild má lesa hér.