Affineva vinnur Gulleggið 2026

27. febrúar 2026Viðburðir
Líftækniteymið Affineva bar sigur úr býtum í lokakeppni Gulleggsins 2026 sem fór fram í Grósku fimmtudaginn 26. febrúar síðastliðinn. Affineva vinnur að þróun nýrrar tækni til að hreinsa og einangra svokallaðar utanfrumublöðrur (extracellular vesicles) sem frumur nota til að senda ýmiskonar efni sín á milli. Markmiðið er að nýta tæknina til að beina krabbameinslyfjum sérstaklega að krabbameinsfrumum og styðja við þróun næstu kynslóðar krabbameinslyfja og greininga.
Í Affineva-teyminu eru Berglind Eva Benediktsdóttir og Páll Þór Ingvarsson, dósentar við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Jens Guðmundur Hjörleifsson, lektor við Líf- og umhverfivísindadeild.
IORDEN í öðru sæti og Norrstone í þriðja
Í úrslitum Gulleggsins kepptu tíu teymi sem kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum sal og dómnefnd skipaðri fulltrúum bakhjarla keppninnar. Borghildur Erlingsdóttur, forstjóri Hugverkastofunnar, sat í dómnefnd fyrir hönd Hugverkastofunnar.

Í öðru sæti Gulleggsins í ár var IORDEN með lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum. Í 3. sæti var Norrstone með stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi, lausn sem byggir á stafrænum skartgripavottorðum á bálkakeðju sem auðveldar vottun, tryggingar, vildarkerfi og endursölu. Teymin í efstu þremur sætunum hlutu vegleg peningaverðlaun frá Landsbankanum.
Samtalsleit og hugverkaráðgjöf frá Hugverkastofunni
Hugverkastofan veitir Affineva og nokkrum öðrum teymum í úrslitum Gulleggsins sérsniðna hugverkaráðgjöf með sérfræðingi stofnunarinnar. Auk þess býðst nokkrum teymum að nýta sér svokallaða samtalsleit einkaleyfa sér að kostnaðarlausu. Um er að ræða fjarfund einkaleyfarannsakanda hjá Nordic Patent Institute sem leitar kerfisbundið að þekktri tækni í einkaleyfagagnagrunnum. Niðurstöðu samtalsleitar er ætlað að gefa uppfinningamanni hugmynd um nýnæmi uppfinningarinnar, þ.e. hvort uppfinning eða hluti hennar sé þegar þekkt.
Heiðursegg Gulleggsins 2026 til Lavashow
Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki á borð við Lavashow.
IORDEN á leið til Riga
Auk peningaverðlauna keppa teymi Gulleggsins um margvísleg aukaverðlaun sem veitt eru af bakhjörlum og samstarfsaðilum keppninnar. Þessi verðlaun fela í sér sérhæfða ráðgjöf, aðstöðu og handleiðslu sem hjálpa teymunum að taka næstu skref í þróun hugmynda sinna.
Þar á meðal veita Ungir frumkvöðlar – Junior Achievement Iceland einu háskólateymi tækifæri til að taka þátt í GEN-E nýsköpunarkeppninni í Riga í Lettlandi þar sem teymið fær að mæta alþjóðlegum jafningjum og fjárfestum og reyna á hugmynd sína á stærra sviði. Verðlaunin hlaut IORDEN.
Nýsköpun sem færir hugmyndir frá sviðinu út í samfélagið
Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands. Það er haldið af KLAK – Icelandic Startups og hefur frá árinu 2008 verið mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla með verkefni á hugmyndastigi. Fjöldi sprotafyrirtækja sem hafa náð langt á innlendum og erlendum markaði stigu sín fyrstu skref á sviði Gulleggsins.
Gulleggið er opið öllum sem hafa hugmynd og vilja prófa sig áfram í nýsköpun, óháð bakgrunni eða reynslu. Þátttakendur fá fræðslu, handleiðslu og tækifæri til að prófa hugmyndir sínar í krefjandi umhverfi, þar sem áhersla er á að læra hratt, þróa áfram og tengjast öflugu vistkerfi frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga.
Hugverkastofan er stoltur bakhjarl Gulleggsins.
