Fréttir

Áslaug Arna afhenti nemendum Skarðshlíðarskóla verðlaun á 50 ára afmælishátíð Evrópska einkaleyfasamningsins

Eiríkur Sigurðsson01. október 2023Viðburðir
Hópmynd

Hópur nemenda Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði fór snemma á fætur í morgun til að taka þátt í 50 ára afmælishátíð evrópska einkaleyfasamningsins. Þau voru þar í góðum félagsskap Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hans hátignar Willem-Alexander, konungs Hollands, Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og fleiri.

Tilefni þess að nemendum Skarðshlíðarskóla var boðið að taka þátt í hátíðardagskránni er að þau unnu til verðlauna í alþjóðlegri listaverkasamkeppni sem Evrópska einkaleyfastofan (European Patent Office, EPO) stóð fyrir í tilefni afmælisins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar veitti fulltrúum nemendahópsins viðurkenningarskjal í húsakynnum Hugverkastofunnar í morgun. Verðlaunaafhendingin var send út í beinni útsendingu til höfuðstöðva EPO í Munchen þar sem hún var liður í viðamikilli afmælisdagskrá. Bein útsending var einnig frá Haag í Hollandi þar sem hans hátign Willem-Alexander, konungur Hollands, veitti sambærileg verðlaun og frá Pnom Penh þar sem iðnaðarráðherra Kambódíu veitti verðlaun. Fjórði nemendahópurinn var frá Munchen og fékk sín verðlaun afhent þar.

Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir tók við viðurkenningarskjali fyrir hönd nemenda Skarðshlíðarskóla
Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir tók við viðurkenningarskjali fyrir hönd nemenda Skarðshlíðarskóla

Vinningsverkið frá Íslandi heitir Vinátta og var unnið í myndmennt veturinn 2019-2020 af öllum nemendum Skarðshlíðarskóla undir stjórn Hafdísar Baldursdóttur, myndmenntakennara. Alls sendu 3612 nemendur í 56 skólum frá 19 löndum inn listaverk í keppnina, en þema hennar var tækni, listir og nýsköpun. Auk viðurkenningarskjalsins hljóta vinningsskólarnir 3.000 evrur, jafnvirði um 450.000 króna, til að nota við fræðslustarf um sjálfbærni í tengslum við tækni, listir eða nýsköpun.

Vinningsverkið heitir Vinátta og var unnið af öllum nemendum Skarðshlíðarskóla 2019-2020 undir stjórn Hafdísar Baldursdóttur, myndmenntakennara.
Vinningsverkið heitir Vinátta og var unnið af öllum nemendum Skarðshlíðarskóla 2019-2020 undir stjórn Hafdísar Baldursdóttur, myndmenntakennara.

Ísland gerðist Ísland aðili að Evrópska einkaleyfasamningnum (EPC – European Patent Convention árið 2004. Aðildarríki samningsins eru alls 39 ríki í Evrópu og þau reka í sameiningu Evrópsku einkaleyfastofuna. Hugverkastofan á fulltrúa í fjölda nefnda og ráða á hennar vegum, m.a. fjármála-, laga- og tækninefndum sem og framkvæmdaráði. Forstjóri Hugverkastofunnar hefur verið varaformaður framkvæmdaráðsins frá árinu 2019 og var í árslok 2021 endurkjörin til næstu 3ja ára.

Fyrsta evrópska einkaleyfið var veitt af EPO árið 1980 fyrir tæki sem metur hvort að myntir sem settar eru í myntsjálfsala séu ófalsaðar. Síðan hefur EPO veitt yfir tvær milljónir einkaleyfa fyrir tæknilegar uppfinningar, sem margar hverjar hafa breytt heiminum, allt frá QR-kóðum og MP3-skrám að öryggiskerfum í bílum og bóluefnum. Í sumar var svo einu evrópsku einkaleyfi hleypt af stokkunum. Með því er hægt að sækja um eitt einkaleyfi sem gildir í 17 þátttökulöndum innan Evrópusambandsins, greiða eitt umsóknar- og endurnýjunargjald í einum gjaldmiðli, undir einu réttarkerfi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhenti nemendahópnum verðlaun fyrir hönd Evrópsku einkaleyfastofunnar. Á myndinni eru einnig Hafdís Baldursdóttir, myndmenntakennari og Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhenti nemendahópnum verðlaun fyrir hönd Evrópsku einkaleyfastofunnar. Á myndinni eru einnig Hafdís Baldursdóttir, myndmenntakennari og Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla.