Fréttir
Beint streymi frá afhendingu WIPO Global verðlaunanna 11. júlí kl. 9:30

Á morgun, föstudaginn 11. júlí, kemur í ljóst hvort Carbfix hljóti WIPO Global verðlaunin 2025, en fyrirtækið er eitt þrjátíu fyrirtækja sem tilnefnt er til verðlaunanna.
Forstjóri WIPO, Darren Tang, mun afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn á allsherjarþingi stofnunarinnar í höfuðstöðvum hennar í Genf kl. 9:30. Sýnt verður frá athöfninni í beinu streymi á vef WIPO.
WIPO Global verðlaunin eru veitt ár hvert af Alþjóðahugverkastofnuninni (World Intellectual Property Organization, WIPO) framúrskarandi litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sprotafyrirtækjum og háskólasprotum fyrir öfluga nýsköpun, skýra hugverkastefnu og mikilvægt framlag til efnahagslegrar, samfélagslegrar og umhverfislegrar sjálfbærni. Í ár bárust WIPO alls tillögur um tilnefningu 780 fyrirtækja frá 95 löndum. Frekari upplýsingar um verðlaunin og tilnefnd fyrirtæki er að finna á vef WIPO.
Um Alþjóðahugverkastofnunina
Alþjóðahugverkastofnunin (World Intellectual Property Organization, WIPO) er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Alls eru 193 lönd aðilar að stofnuninni, þar á meðal Ísland sem hefur verið aðili frá árinu 1986. Hjá stofnuninni starfa um 1.700 manns, flestir í höfuðstöðvum hennar í Genf í Sviss. WIPO ber ábyrgð á alþjóðasamningum um hugverkaréttindi sem skapa samræmda umgjörð um alþjóðleg skráningarferli vörumerkja, einkaleyfa og hönnunar og hlutverk skráningaryfirvalda í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá og á Hugverkastofan fulltrúa á þeim fundum og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.
