Fréttir

Carbfix hlýtur WIPO Global verðlaunin 2025

Eiríkur Sigurðsson11. júlí 2025Alþjóðlegt samstarfViðburðir
W2254180

Alþjóðahugverkastofnunin, undirstofnun Sameinuðu þjóðanna sem ber ábyrgð á hugverkaréttindum, veitir verðlaunin fyrir framúrskarandi nýsköpun sem leiðir til aukinnar sjálfbærni.

Genf, 11. júlí 2025 – Carbfix hlaut í dag WIPO Global verðlaun 2025 í umhverfisflokki. Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, fékk einnig sérstaka viðurkenningu sem besti kvenfrumkvöðullinn. Edda Sif veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á allsherjarþingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization – WIPO) í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Genf í Sviss. WIPO Global verðlaunin eru veitt sprotafyrirtækjum og litlum og meðalstórum nýsköpunarfyrirtækjum sem hafa nýtt sér skráningu hugverkaréttinda með árangursríkum hætti til að skapa áþreifanleg efnahagsleg og samfélagsleg verðmæti. Carbfix er eitt tíu fyrirtækja sem hlýtur verðlaunin í ár og var valið var úr hópi 780 fyrirtækja frá 95 löndum.

Carbfix hlýtur verðlaunin fyrir byltingarkennda og einkaleyfisvarða aðferð til að binda koldíoxíð í bergi til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifum og fyrir markvissa skráningu hugverkaréttinda við þróun og skölun á tækni sinni sem tekst á við eitt brýnasta viðfangsefni samtímans.

„Það er mikill heiður fyrir Carbfix að hljóta WIPO Global verðlaunin,“ sagði Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix við verðlaunaafhendinguna í morgun. „Verðlaunin eru viðurkenning á þeirri miklu vinnu sem við höfum lagt í þróun og uppbyggingu Carbfix tækninnar og þeirri markvissu hugverkastefnu sem við höfum mótað samhliða. Við erum stolt af því að hljóta slíka viðurkenningu á alþjóðavettvangi og að Ísland eigi fulltrúa í hópi framsæknustu hugverkaþróunarfyrirtækja heimsins.“

„Við erum stolt af því að hljóta slíka viðurkenningu á alþjóðavettvangi og að Ísland eigi fulltrúa í hópi framsæknustu hugverkaþróunarfyrirtækja heimsins.“

Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix

Um 1.400 fulltrúar sækja nú árlegt allsherjarþing Alþjóðahugverkastofnunarinnar í Genf, þar á meðal fulltrúar Íslands frá Hugverkastofunni, til að ræða framtíð nýsköpunar og hugverkaréttinda. Verðlaunahafar hafa á þinginu hlotið sérsniðna ráðgjöf og sérfræðiaðstoð varðandi hugverkaréttindi og alþjóðlegt samstarf, auk þess sem verðlaunafyrirtækin verða kynnt á fjölbreyttan hátt af Alþjóðahugverkastofnuninni um allan heim.

„Handhafar WIPO Global verðlaunann 2025 eru ekki einungis frumkvöðlar með góðar hugmyndir, þeir vinna markvisst að framtíðarmarkmiðum sínum, hafa skýra sýn á árangur og hugsa á alþjóðavísu,“ segir Marcelo Di Pietro, forstöðumaður verðlaunaáætlunar WIPO. „Við erum stolt af því að fá að styðja þá á þeirri vegferð.“

Um Carbfix

Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í bindingu koldíoxíðs (CO2) í bergi neðanjarðar. Fyrirtækið hefur síðan 2012 bundið um 100 þúsund tonn af CO2 á Íslandi með eigin tækni sem er örugg, sannreynd, varanleg og hagkvæm. Stefnt er að frekari innleiðingu hennar bæði á Íslandi og erlendis. Nánari upplýsingar um fyrirtækið, tækni þess og verkefni má finna á www.carbfix.com

Um Alþjóðahugverkastofnunina

Alþjóðahugverkastofnunin (World Intellectual Property Organization, WIPO) er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Alls eru 193 lönd aðilar að stofnuninni, þar á meðal Ísland sem hefur verið aðili frá árinu 1986. Hjá stofnuninni starfa um 1.700 manns, flestir í höfuðstöðvum hennar í Genf í Sviss. WIPO ber ábyrgð á alþjóðasamningum um hugverkaréttindi sem skapa samræmda umgjörð um alþjóðleg skráningarferli vörumerkja, einkaleyfa og hönnunar og hlutverk skráningaryfirvalda í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá og á Hugverkastofan fulltrúa á þeim fundum og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.