Fréttir

Feik eða ekta? Sýning í Epal á Hönnunarmars 23.-27. apríl

Eiríkur Sigurðsson05. apríl 2024Viðburðir
Feik Eða Ekta Vefmynd (560 X 373 Px) (2)

Hefur þú rekist á ótrúlega góðan díl á merkjavöru á netinu? Eða verið boðin ótrúlega ódýr myndavél til kaups á Tene? Vissir þú að feik vörur eru oft framleiddar og seldar af skipulögðum glæpasamtökum og sumar þeirra geta jafnvel valdið fólki skaða?

Hugverkastofan, Epal og React - alþjóðlegt samstarfsnet fyrirtækja gegn fölsunum, bjóða til sýningar á Hönnunarmars dagana 23.-27. apríl, í verslunum Epal í Skeifunni og á Laugavegi, í tilefni af Alþjóðahugverkadeginum 26. apríl. Markmiðið er að vekja athygli á því af hverju við ættum að velja ekta vörur, virða hugverkaréttindi og forðast að kaupa eftirlíkingar. Hægt verður að skoða sýnishorn af fölsuðum vörum og bera saman við ekta fyrirmyndir og taka þátt í getraun um hvaða vörur eru ekta og hverjar ekki. Í verðlaun er FlowerPot lampi í boði Epal.

Við vitum flest að ef eitthvað er of gott til að vera satt er það oftast plat en samt er auðvelt og freistandi að falla fyrir gylliboðum á netinu og sitja svo uppi með köttinn í sekknum: lélega eftirlíkingu og engan rétt. En falsaðar vörur eru ekki bara lélegar eftirlíkingar af vandaðri merkjavöru. Falsanir á allskonar vörum og þjónustu eru það svið skipulagðrar glæpastarfsemi sem vex einna hraðast og talið er að markaður með eftirlíkingar og falsaðar vörur nemi um 3,3% af heimsviðskiptum. Það eru alls konar vörur sem eru falsaðar: tölvuvörur, leikföng, lyf, matvæli, bíla- og flugvélavarahlutir, snyrtivörur, lækningavörur og húsgögn, svo fátt eitt sé nefnt. Talið er að árið 2019 hafi verðmæti falsaðs innflutnings til ríkja Evrópusambandsins numið 119 milljörðum evra eða um átján þúsund milljörðum íslenskra króna að núvirði, sem er 5,8% af öllum innflutningi og að ríkin hafi orðið af 671.000 störfum vegna sölu falsaðs varnings. Sambærilega tölur fyrir Ísland liggja ekki fyrir en í tengslum við sýninguna verða kynntar niðurstöður könnunar á viðhorfi Íslendinga til falsaðra vara og á því hvort þeir kaupi slíkar vörur.

En tjónið af fölsuðum vörum er ekki bara efnahagslegt. Sumar falsaðar vörur, svo sem lyf, lækningatæki, leikföng, varahlutir og snyrtivörur, svo fátt eitt sé talið, geta valdið óbætanlegum skaða og framleiðsla og sala á fölsuðum vörum er oft helsta tekjulind skipulagðra glæpasamtaka sem einnig stunda fíkniefna- og vopnasmygl og mansal.

Það er því til mikils að vinna að draga úr verslun með falsaðar vörur. Komdu í Epal dagana 23.-27. apríl og kynntu þér málið.