Flutningi í Katrínartúnið fagnað

02. febrúar 2024Viðburðir
Hugverkastofan flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði við Katrínartún 4 síðastliðið sumar og í gær var komið að því að fagna tímamótunum með starfsfólki, viðskiptavinum og öðrum velunnurum. Anton Brink ljósmyndari var á staðnum og smellti af nokkrum myndum.
Með flutningunum hefur vinnuumhverfi starfsfólks Hugverkastofunnar breyst mjög til hins betra. Allt starfsfólk vinnur nú í opnu, hlýlegu alrými á einni hæð, sem mikil ánægja er með. Þá er funda- og næðisaðstaða eins og best verður á kosið. Sigga Heimisdóttir hönnuður var ráðgjafi við endurhönnun húsnæðisins og leiddi m.a. vinnustofur með starfsfólki þar sem línur voru lagðar varðandi litaval og fleira. Afltak sá um smíðavinnu.











